Næst komandi mánudag, 17. janúar, mun Hrefna Haraldsdóttir, foreldraráðgjafi, kynna starfsemi Sjónarhóls ses. á Vopnafirði. Mun Hrefna bjóða foreldrum barna upp á viðtöl, vera með kynningarfund fyrir starfsfólk og kennara grunnskólans um starfsemi Sjónarhóls og almennan kynningarfund um kvöldið í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju kl. 20:00.
Að Sjónarhóli- ráðgjafarmiðstöð ses. standa eftirfarandi samtök:
Með stofnun Sjónarhóls rættist margra ára draumur um faglega og óháða ráðgjöf fyrir aðstandendur barna sem eiga við langvarandi veikindi og fötlun að stríða.
Sjónarhóll er miðpunktur þjónustu á þessu sviði, þekkingartorg þar sem hægt er að finna á einum stað yfirgripsmikla vitneskju og reynslu sem hingað til hefur verið dreifð um borg og bæi.
Sjónarhóll er umboðsmaður fjölskyldna barna með sérþarfir;
- hann gætir að réttindum þeirra,
- eflir möguleika þeirra og
- veitir leiðsögn á leið til betra lífs.
Í tilkynningu skólastjóra segir:
Mánudaginn 17. janúar mun Hrefna Haraldsdóttir frá Sjónarhóli koma til Vopnafjarðar. Hún mun bjóða foreldrum barna upp á viðtöl, vera með kynningarfund fyrir starfsfólk og kennara skólans um starfsemi Sjónarhóls og almennan kynningarfund um kvöldið í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju kl.
20:00
Viðtöl fyrir foreldra
Boðið verður upp á viðtöl fyrir alla foreldra barna með sérþarfir á hvaða aldri sem börnin eru. Einnig fyrir foreldra sem hafa áhyggjur af líðan barns síns. Barnið þarf ekki að hafa greiningu. Tímapantanir eru í síma Sjónarhóls 535 1900 eða á netfanginu: hrefna@sjonarholl.net.
Kynningarfundur á þjónustu Sjónarhóls
Opin kynningarfundur á þjónustur og starfsemi Sjónarhóls, þar sem sagt verður frá þeim málum sem leitað er til þeirra með og hvernig unnið er úr þeim verður kl. 20:00 í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju.
Hér er um mikilvægt tækifæri að ræða fyrir foreldra barna með líður illa eða hafa einhverjar sérþarfir og aðstandendur þeirra til að kynna sér þjónustu og úrræði sem í boði eru.