Jöfnunarsjóður sveitarfélaga

17.01 2011 - Mánudagur

Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps var afgreidd á fundi hreppsnefndar þann 16. desember sl. með hagnaði A-hluta sjóða uppá 40.7 milljónir króna. Til A-hluta sveitarsjóðs teljast m. a. skatttekjur og framlög jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Þáttur Jöfnunarsjóðs í tekjum sveitarfélaga er mismikill en fyrir þau mörg er framlag hans afgerandi. Á sl. ári komu 54.6 milljónir króna í hlut Vopnafjarðar, sem skiptust í tekjujöfnunarframlag 19.6 mkr. og útgjaldajöfnunarframlag tæpar 35 mkr. Á yfirtandandi ári er reiknað með að framlagði lækki um u. þ. b. 6 milljónir.

Hlutverk Jöfnunarsjóðs er skilgreint með eftirfarandi hætti:

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga starfar á grundvelli laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995, með síðari breytingum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur á hendi yfirstjórn Jöfnunarsjóðs, en honum til ráðuneytis er fimm manna ráðgjafarnefnd sem skipuð er til fjögurra ára að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Fjórir nefndarmenn eru skipaðir samkvæmt tilnefningu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, en einn er skipaður af ráðherra án tilnefningar og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.

Jöfnunarframlög sjóðsins skiptast í tekju- og útgjaldajöfnunarframlög og skýrist svo:

Tekjujöfnunarframlög

Jöfnunarsjóður úthlutar tekjujöfnunarframlögum til þeirra sveitarfélaga sem hafa lægri skatttekjur en sambærileg sveitarfélög.

Jöfnunin fer þannig fram að sveitarfélögum er skipt í fjóra viðmiðunarflokka eftir íbúafjölda. Á grundvelli skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga, sem samgönguráðuneytið tekur árlega saman í samvinnu við Samband íslenskra sveitarfélaga, eru reiknaðar út meðaltekjur sveitarfélaga á íbúa í hverjum viðmiðunarflokki. Við gerð skrár um fullnýtingu tekjustofna sveitarfélaga skal einnig taka tillit til jöfnunarframlaga sem sveitarfélög fá vegna lækkunar tekna af fasteignaskatti. Ef meðaltekjur á íbúa í sveitarfélagi eru  lægri en allt að 97% af meðaltekjum á hvern íbúa í öllum sveitarfélögum í viðkomandi viðmiðunarflokki er greitt tekjujöfnunarframlag sem nemur allt að mismuninum.

Framlögin eru greidd án umsókna að 3/4 hlutum fyrir 1. nóvember ár hvert en endanlegt uppgjör fer fram fyrir árslok á grundvelli leiðréttrar skrár um álagðar skatttekjur sveitarfélaga.

Útgjaldajöfnunarframlög

Til útgjaldajöfnunarframlaga er varið þeim tekjum sjóðsins sem eru umfram ráðstöfun annarra framlaga.

Hlutverk útgjaldajöfnunarframlaga er að mæta mismunandi útgjaldaþörf sveitarfélaga á grundvelli stærðarhagkvæmni og tekna þeirra, að teknu tilliti til þeirra þátta sem áhrif hafa á útgjaldaþörf. Útgjaldajöfnunarframlög eru reiknuð út á grundvelli eftirfarandi viðmiðunarþátta: Íbúafjölda 0 - 5 ára, 6 - 15 ára, 16 - 66 ára, 67 - 80 ára, 81 ára og eldri, fjölda innflytjenda 0 - 5 ára, fjarlægða innan sveitarfélaga, fjölda þéttbýlisstaða umfram einn, skólaaksturs úr dreifbýli, fækkunar íbúa og snjómoksturs í þéttbýli.

Framlögin eru greidd án umsókna mánaðarlega, en þó er haldið eftir 10% af áætluðum útgjaldajöfnunarframlögum til að mæta því ef tekjur sjóðsins verða minni en áætlað er hverju sinni. Endanlegt uppgjör útgjaldajöfnunarframlaga fer fram í desember.

Fastar tekjur Jöfnunarsjóðs eru tryggðar svona:

  • Framlag úr ríkissjóði sem nemur 2,12% af innheimtum skatttekjum ríkissjóðs.
  • Árlegt framlag úr ríkissjóði sem nemur 0,264% af álagningarstofni útsvars vegna næstliðins tekjuárs.
  • Hlutdeild í útsvarstekjum sveitarfélaga sem nema 0,77% af álagningarstofni útsvars hvert ár (tilkomið vegna yfirfærslu grunnskólans).
  • Vaxtatekjur.

Í bókun fundar sveitarstjórnar þann 16. desember sl. segir:

„Í  rekstraryfirliti sveitarsjóðs í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun kemur fram, að heildartekjur aðalsjóðs eru 470,3  m.kr. samanborið við 433,4 m.kr. í fjárhagsáætlun 2010 og heildargjöld 422,9  m. kr. samanborið við 401,1 m.kr. 2010.   Megin skýring þess að tekjur og gjöld hækka svona milli ára er að hér er áætlað bæði tekju og gjalda megin fyrir yfirfærslu málefna fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga.   Sú fjárhæð er 18,4 m.kr. tekna- og gjaldamegin." Framlag jöfnunarsjóðs í tekjum sveitarfélagsins árið 2011 gæti þá verið nálægt 10%.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir