Heildarsamkomulag milli ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu þjónustu fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga var undirritað þann 24. nóvember sl. Sú þjónusta sem ríkið hefur veitt fötluðu fólki samkvæmt lögum nr. 59/1992 um málefni fatlaðra færðist til sveitarfélaganna frá og með 01. janúar 2011.
Yfirfærslan hefur verið á dagskrá sveitarstjórnarfólks um langt árabil eða allt frá árinu 2007. Yfirfærslan hefur sum sé verið raungerð en eins og ávallt er þegar stór málaflokkur flyst frá ríki til sveitarfélags varðar miklu að fjármagn sé tryggt. Þessu er mætt með 1.20% hækkun útsvars gegn samsvarandi lækkun á tekjuskattshlutfalli ríkisins. Án alls efa eru sveitarstjórnarmenn betur í stakk búnir að takast á hendur verkefnið hafandi yfirtekið rekstur grunnskólans á sínum tíma. Þá tókst vel til og engin ástæða til að ætla annað en svo verði nú.
Markmið yfirfærslunnar er að eitt stjórnsýslustig beri faglega og fjárhagslega ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu. Í annan stað er yfirfærslunni ætlað að styrkja sveitarstjórnarstigið og einfalda verkskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Síðast en ekki síst er markmiðið að bæta þjónustu við fatlaða og auka möguleikana á að laga hana að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum.
Íslendingar eru aðilar að samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra en honum er ætlað að tryggja fötluðum sama aðgang að samfélaginu og öðrum. Að fatlað fólk njóti mannréttinda og mannfrelsis til jafns við aðra, að vernda og tryggja slík réttindi og frelsi og að auka virðingu fyrir mannlegri reisn þeirra. Með yfirfærslunni gefst sveitarfélögum tækifæri til að bæta aðgengi og þjónustu við fatlað fólk í nærumhverfi sínu. Því má segja að yfirfærsla málaflokksins sé mikilvægt skref í réttindamálum fatlaðra.
Með tilflutningnum fá um 1400 ríkisstarfsmenn nýjan vinnuveitanda hjá hlutaðeigandi sveitarfélögum. Starfsmenn þessir verða dýrmæt viðbót við öflugan starfsmannahóp sem nú þegar sinnir velferðarþjónustu sveitarfélaganna. Ljóst er að verkefnið er krefjandi og væntingar miklar. Fólk verður að gera sér grein fyrir að yfirfærslan tekur tíma þó engin ástæða sé til að ætla annað en að vel muni ganga.
Þjónustusvæði vegna málefna fatlaðra eru 15 talsins. Þau eru mynduð um rekstur þjónustu og eru miðuð við að þau hafi að lágmarki um 8.000 íbúa. Á þessu er þó gerðar undantekningar á grundvelli landfræðilegra aðstæðna, enda hafi viðkomandi sveitarfélög sýnt frám á getu sína að veita alhliða þjónustu.
Vopnfirðingar rétt eins og aðrir hafa yfirtekið málaflokkinn en smæðar sinnar vegna fellur málaflokkurinn undir Svæðisskrifstofu fatlaðra á Héraði, SAust. Aðalskrifstofa SAust er að Tjarnarbraut 39 B, Egilsstöðum. Þar fer fram stjórnun, rekstur, starfsmannahald, þróun og uppbygging þjónustunnar á Austurlandi. Þar er jafnframt veitt stoðþjónustu fyrir börn og fullorðna í öllum sveitarfélögum á Austurlandi. Stoðþjónusta er m. a.: Ráðgjöf, atvinna með stuðningi, stuðningsfjölskyldur, skammatímavist og frekari liðveisla. Þá eru veittir styrkir til verkfæra og tækjakaupa svo og styrkir til greiðslu námskostnaðar.
Í samantekt er markmið yfirfærslunnar:
· Að eitt stjórnsýslustig beri faglega og fjárhagslega ábyrgð á stærstum hluta almennrar félagsþjónustu
· Að bæta samhæfingu og draga úr skörun ábyrgðar milli stjórnsýslustiga
· Að styrkja sveitarstjórnarstigið og einfalda verkskiptingu ríkis og sveitarfélaga
· Að auka möguleika á að laga þjónustuna að þörfum notenda með hliðsjón af ólíkum aðstæðum
Ofangreint er byggt á umfjöllun Sveitarstjórnarmála um málefnið og skrifum formanns Sís, Halldórs Halldórssonar, í síðasta tbl. ritsins.