Starfsmenn hrepps hirða sorp

21.01 2011 - Föstudagur

Vopnfirðingum öllum, sem komnir eru til vits og ára, er vel kunnugt um breytta tilhögun sorphirðu í sveitarfélaginu. Húsráðendur eyða nú orðið nokkrum mínútum dag hvern í að flokka það sem sorp sem tilfellur - og það er býsna mikið á meðal heimili - og einungis lítill hluti, segjum ca. 20%, fer nú í sorptunnuna. Þær eru einmitt losaðir í dag, föstudaginn 21. janúar - á sjálfan bóndadaginn!

Heimildarmaður leyfði sér að elta hressa starfsmenn sveitarfélagsins en þeir bregða sér í alls kyns líki allt eftir eðli starfsins hverju sinni - í dag eru þeir í sorpinu. Vilja þeir félagar koma á framfæri þökkum til íbúa sveitarfélagsins hversu vel þeir hafa tekið í þetta sameiginlega verkefni okkar íbúa jarðar, að ganga vel og æ betur um móður jörð.

Með breyttri tilhögun er sorpið sótt 3ja hverja viku enda magnið ekki nema brot þess sem áður var - og fyrsta ferð ber s. s. uppá bóndadag. Engir eru svörtu pokarnir í sorptunnunum lengur, einungist þeir sem frá heimilunum koma, en á móti kemur hið flokkaða sorp sem fer í lúgurnar í Safnstöð sveitarfélagsins þar sem áður voru aðalstöðvar áhaldahúss. Aðgengið þar hefur verið bætt með þar til gerðum hillum neðan lúganna, allt er gert til að bæta þjónustuna og koma þannig til móts við góðan vilja íbúanna við flokkunina.

Nokkrar myndir fylgja frétt þessari, misgóðar eins og svo oft áður og ber að taka viljann fram yfir verkið :-)

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir