Því hefur löngum verið haldið fram að á Íslandi sé ekkert veður, einungis sýnishorn af veðri! Auðvitað er það ekki rétt en ólíkt t. a. m. norður Noregi, þar sem sveiflur í veðurfari eru litlar, búum við Íslendingar við allt annars konar aðstæður. Einn daginn ríkir hér grimmur vetur þar sem kvikasilfrið fer niður fyrir -20°C og íshafsvindurinn lemur landið miskunarlaust, þann næsta 10°C með sunnanþey.
Það eru kannski ýkjur að staðhæfa að sveiflurnar séu 30°C á milli sólarhringa en það eru engar ýkjur að staðhæfa að sveiflurnar eru ótrúlega miklar á stundum. Dögum saman voru starfsmenn áhaldahúss uppteknir við snjóhreinsun um allan bæ, önnur verk sátu á hakanum enda krafan að samgöngur um götur þorpsins væru tryggðar. Þetta á við 07. janúar sl. og dagana er fylgdu í kjölfarið, t. a. m. var það í síðustu viku sem tími gafst til að taka niður jólastjörnunarnar er prýddu ljósastaura gatna. Í sömu viku tóku vindar aðra stefnu og á ótrúlega skömmum tíma tók snjóinn upp, að vísu stóð klakinn af sér hitann og hálkan um nokkurra daga skeið mikil.
Í gær rölti heimildarmaður um þorpið ásamt betri helmingnum og tók þá fáeinar myndir og birtir þær ásamt nokkrum frá sjöunda sl. svona til samanburðar og sönnunar á því að stundum á við staðhæfingin um að hér sé ekkert veður, einungis sýnishorn af því. Að lokum má geta þess að skv. Veðurstofu Íslands er mildra daga að vænta fram yfir næstu helgi, síðan má allt eins gera ráð fyrir að vetur minni á sig á ný, skóflur taka við af sópi og þannig mun þetta ganga fram á vor - en vonandi ekki sumar!