Íþróttadagur grunnskólans

26.01 2011 - Miðvikudagur

Heilbrigð sál í hraustum líkama er göfugt markmið og skv. grunnskólalögum frá 1995 segir m. a.: Grunnskólinn skal leitast við að haga störfum sínum í sem fyllstu samræmi við eðli og þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska, heilbrigði og menntun hvers og eins.

Í morgun var blásið til íþróttadags í grunnskólanum og var líf og fjör í íþróttahúsinu er heimildarmann bar að garði um kl. 09:30.

Er fátt ánægjulegra en að vera innan um tápmikil börn og ungmenni. Auðvitað er það ætíð svo að áhuginn ræðst nokkuð af aldri krakkanna, því yngri því áhugasamari á degi sem þessum. Engu að síður voru allir að leggja sig fram og höfðu ánægju af - þó ekki væri nema fyrir þá staðreynd að fást við eitthvað annað en skræðurnar. Tilbreytingin er öllum nauðsynleg en aftur að markmiðum skólans skv. grunnskólalögum, í ljósi hins jákvæða framtaks grunnskólans okkar í dag. Þar stendur m.a.:

Ístarfi skólans skal leggja áherslu á:

 

- að efla sjálfsvitund og félagsvitund nemenda

- að stuðla að líkamlegri og andlegri velferð, heilbrigðum lífsháttum og ábyrgri umgengni við líf og umhverfi

 

Markmið skólaíþrótta:

- að orka á heilbrigði nemenda, temja þeim hollar venjur og heilsuvernd daglegs lífs

- að vekja hug nemenda og skilning á iðkun íþrótta, svo og að þeir iðki íþróttir í tómstundum sínum og haldi áfram íþróttaiðkunum að skóla loknum

 

Þetta er ágætis innlegg í fréttina en annars tala fjölmargar myndirnar sínu máli þar sem ofvirknin gerði vart við sig og heimildarmaður handlék myndavélartakkann sem í akkorði væri.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir