Stofnaður hefur verið með formlegum hætti ferðaþjónustuklasi á Vopnafirði - kl. 17:00 í gær var blásið til stofnfundar og var mæting með ágætum miðað við stærð geirans í samfélaginu vopnfirska. Horfa hlutaðeigandi með bjartsýni til framtíðar og vonandi er full ástæða til en allt byggist á frumkvæði heimamanna.
Til fundarins, sem Björn Halldórsson stýrði með skörulegum hætti, var Kristbjörg Jónasdóttir frá Impru sérstaklega boðuð. Eftir að Fanney Hauksdóttir hafði sett fund og fengið samþykki fundarins að Björn tæki við fundarstjórn flutti Kristbjörg tölu um hugtakið klasa, uppbyggingu hans, tók dæmi um slíka og veitti hollráð til vopnfirðinga. Að erindinu loknu flutti Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, við Ferðamáladeild Hólaskóla, erindi í gegnum vefinn, þar sem hún gerði m. a. samanburð á túrista og ferðamanni, sérlega athyglisverður fyrirlestur.
Að fyrirlestrum loknum kom að stóra verkefninu, stofnun ferðaþjónustuklasa og samþykktum hans. Las Björn í gegnum uppkastið lið fyrir lið; fundarmenn ýmist samþykktu tillöguna óbreytta eða lögðu til breytingar - og þegar þær höfðu verið framsettar og samþykktar var haldið áfram. Allt gekk þetta vel og í framhaldinu bar Björn upp tillögu að stjórn hins nýja ferðaþjónustuklasa: B. Fanney Hauksdóttir, Guðjón Böðvarsson og Magnús Már Þorvaldsson. Varamenn Sigríður Bragadóttir og Þórhildur Haraldsdóttir. Var stjórn og vara samþykkt með lófataki, hún skiptir síðan með sér verkum. Árgjald ákveðið 5.000 kr. fyrst í stað.
Að formlegum fundi loknum, rétt liðlega kl. 18:30, kom ný stjórn saman og ákvað að fyrsti fundur hennar yrði á morgun (í dag) kl. 13:30 á Hótel Tanga. Nýr klasi hafði verið myndaður, komin stjórn og nú er bara að vona að héðan af muni ferðaþjónustunni á Vopnafirði vaxa fiskur um hrygg, víst er að tækifærin eru til staðar.