English Club

28.01 2011 - Föstudagur

Cathy Ann Josephson á ensku að móðurmáli þó hún eigi sitt upphaf að rekja til Íslands, hvar hún býr nú um stundir og gert sl. áratugi. Cathy vill nú gefa samborgurum sínum á Vopnafirði tækifæri til að nema enska tungu með aðgengilegum og skemmtilegum hætti - í gegnum English Club, Enskuklúbbinn. Hittingur er í Kaupvangi n. k. laugardag.

Hugmyndin er í sjálfu sér einföld og óformleg í gerð sinni en frumkvæðið þeim mun betra. Býðst bæði grunnskólanemum og fullorðnum að njóta leiðsagnar Cathyar, ungmennin í tengslum við Enskuklúbbinn og mæta kl. 14:00 laugardaginn 29. janúar, fullorðnir eru boðnir velkomnir í spjall og/eða hlýða á ensku klukkustund síðar. Í framhaldinu er boðið uppá kaffi og íslensku enda hafi báðir hópar lagt sig fram á hinni framandi tungu engilsaxa undir handleiðslu hinnar Vestur-íslensku Cathyar Ann Josephson, broshýr og kát að vanda :-)

Er rétt að taka það fram að andrúmsloftið á að vera afslappað og notalegt, enginn er mættur til próftöku heldur einungis til að njóta samvista við fólk sem gjarnan vill bæta enskukunnáttuna hafandi leiðbeinanda á staðnum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir