Fyrir helgi var fra því greint á heimasíðu HB Granda h.f. að loðnufrystingu hefði verið hætt að sinni þar eð mikil óvissa ríkir á mörkuðum fyrir frysta loðnu. Á hinn bóginn gangi loðnuveiðar með ágætum þrátt fyrir að veðurfar hafi verið heldur rysjótt.
Á heimasíðu fyrirtækisins, www.hbgrandi.is, segir:
Ákveðið hefur verið að hætta frystingu á loðnu á Vopnafirði að svo stöddu. Ástæðan er sú að mikil óvissa hefur verið á mörkuðum fyrir frysta loðnu og hefur hún farið vaxandi frekar en hitt í kjölfar þess að Rússar bjóða nú ódýra, frysta loðnu úr Barentshafi á sömu mörkuðum og íslenska loðnan er seld á.
Þetta kemur fram í máli Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs HB Granda, sem upplýsir einnig að nú þegar hafi tekist að selja alla loðnu sem fryst hefur verið á vertíðinni. Þar sem að gott verð fáist nú á mjöl- og lýsismörkuðum sé talið rétt að leggja áherslu á að framleiða frekar fyrir þá markaði í stað þess að safna birgðum af frystri loðnu.
Loðnuveiðar hafa gengið ágætlega að undanförnu þrátt fyrir rysjótt tíðarfar. Ingunn AK er nú á leið til Akraness með fullfermi af loðnu og er von á skipinu þangað annað kvöld. Í veiðiferðinni á undan var 1.140 tonnum af loðnu landað á Vopnafirði og þar var Lundey NS á ferðinni í gær með fullfermi, eða 1.580 tonn tonn af loðnu. Skipið er nú á loðnumiðunum og Faxi RE, sem verið hefur á gulldepluveiðum síðustu dagana, er nú á leiðinni á loðnumiðin.
Ólíkt hafast menn að, því á sama tíma og til Vopnafjarðar hafa skip HB Granda komið fulllestuð loðnu þegar hún hefur á annað borð veiðst, hefur verksmiðjan á Akranesi lítið sem ekkert fengið til vinnslu. Samanber að ofan kom Ingunn AK til Akraness með fullfermi loðnu fyrir helgi, fyrstu loðnuna sem berst á Skipaskaga á sl. 3 árum eða svo. Svo er greint frá á www.hrgrandi.is:
,,Ég held að við verðum að halda upp á þetta með því að kaupa stóra rjómatertu. Það er fullt tilefni til,“ segir Guðmundur Hannesson, verksmiðjustjóri HB Granda á Akranesi, en tilefnið sem hann vísar til er það að í kvöld er von á Ingunni AK með fullfermi af loðnu til heimahafnar. Verður þetta í fyrsta skipti í bráðum þrjú ár sem heill loðnufarmur berst fiskmjölsverksmiðjunni á staðnum.
Guðmundur segir það vera tilhlökkunarefni að fá heila loðnu til bræðslu en á undanförnum tveimur vertíðum hefur verksmiðjan aðeins unnið úr loðnuafskurði sem fallið hefur til við hrognatöku. Að sögn Guðmundar er allt tilbúið til að taka á móti loðnu til bræðslu á Skaganum en að undanförnu hefur verksmiðjan unnið úr takmörkuðum gulldepluafla sem þangað hefur borist.