Fermingarbörn frá Vopnafirði í 2. sæti

02.02 2011 - Miðvikudagur

Úrslit spurningarkeppni fermingarbarna á Austurlandi fór fram sunnudaginn 30. janúar sl., en fermingarbörn á Vopnafirði höfðu unnið sér þátttökurétt í úrslitunum með því að sigra sinn riðil sem var á fermingarbarnamóti á Eiðum í haust. Er skemmst frá því að segja að fulltrúar Vopnafjarðar náðu þeim árangri að ná öðru sæti í spurningarkeppninni.

Keppnin hófst með fjölsóttri fjölskylduguðsþjónustu með líflegri tónlist og þátttöku fulltrúa Hjálpræðishersins. Um 80 manns fylgdust með úrslitakeppninni og var góð stemmning og mikil spenna í salnum, og ljóst að spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi er komin til að vera.

Í undanúrslitum áttust við annarsvegar Vopnafjörður og sameiginlegt lið Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur og hinsvegar Egilsstaðir og Reyðarfjörður. Til úrslita kepptu Vopnafjörður og Egilsstaðir, en bæði lið höfðu unnið viðureignir sínar í undanúrslitum með minnsta mögulega mun.

Sjálf úrslitakeppnin var hnífjöfn og skiptust liðin á um að hafa forystu og fyrir síðast lið keppninnar sem var vísbendingaspurningar var Vopnafjörður með yfirhöndina, en lið Egilstaða svaraði síðustu tveimur spurningunum og hafði sigur.

Allir keppendur fengu bókargjöf frá Skálholtsútgáfu, en auk farandbikars og verðlaunapeninga gáfu Samkaup, Shellskálinn Egilsstöðum og Kaffi Sumarlína Fáskrúðsfirði vinninga.

Keppnin var haldin á vegum Prestafélags Austurlands, sem gaf verðlaunapeninga og farandbikar.

Dómari keppninar var Stefán Bogi Sveinsson og umsjón með gerð spurninganna hafði sr. Þorgeir Arason.

Ofangreint tekið af heimasíðu Hofsprestakalls, skrifað af sr. Stefáni Má Gunnlaugssyni.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir