Boðið uppá flugukastnámskeið á Vopnafirði

09.02 2011 - Miðvikudagur

Kunnustu kennileiti Vopnafjarðar munu vera vopnfirsku árnar, alltént í hugum þeirra er láta sig stangveiði sig varða. Árnar eru vissulega ekki að gengilegar hinum almenna áhugamanni en breytir ekki því að mýmargar aðrar eru það á Íslandi og full þörf fyrir að læra listina að krækja í einn og einn lax, bleikju, hæng eða hvað laxfiskarnir heita nú. Slíkt stendur til boða nú.

Sum sé flugukastnámskeið á Vopnafirði næstu sunnudaga og er sjálfsagt að greina frá því á þessum vettvangi. Leiðbeinandi verður aflaklóin Hafþór Róbertsson - auglýsingin hér að lútandi er svo hljóðandi:

Flugukastnámskeið

Námskeiðið hefst sunnudaginn 13. febrúar, kl. 20:00

og er næstu þrjá sunnudag (13/2, 20/2 og 6/3)

 

Námskeiðsgjald er kr. 2.500.- og tekið er við skráningum hjá
Stefáni Már Gunnlaugssyni í síma 867 3396 eða
á netfangið stefan.mar@simnet.is.

 

Öllum er velkomið að taka þátt í námskeiðinu og hægt er að fá lánaðar flugustangir.

Leiðbeinandi er Hafþór Róbertsson

 

Stjórn Veiðifélags Hofsár og Sunnudalsár

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir