Danskennarinn Hinrik Valsson er mættur á Vopnafjörð enn eitt árið og mun kenna nemendum grunnskólans dansmennt og kemur í stað annarra íþrótta þessa vikuna. Er ekki við öðru að búast en að nemendur fagni þessari tilbreytingu, ekki einungis er dans ein besta skemmtan sem má hugsa sér heldur felst í tímunum góð tilbreyting frá hversdeginum.
Dansinn mun ráða ríkjum þessa vikuna í skólanum og aldrei að vita nema eldri nemendur, sem margsinnis hafa notið leiðsagnar Hinriks, munu koma saman aftur og dansa að kveldi. Það er frétt að danskennsla skuli bjóðast á Vopnafirði en líklega er hún þó öllu stærri að næstu vikurnar býðst vopnfirðingum að bera augum körfubolta í íþróttahúsinu. Hefur sr. Stefán Már haft frumkvæði að koma körfuboltanum á og nú stendur mikið til, þátttaka meistaraflokksliðs í Bólholtsbikarkeppninni!
Nú er það svo að menn hafa ekki verið duglegir að sækja æfingar og tími til stefnu vægast sagt takmarkaður því n. k. miðvikudagskvöld er komið að fyrsta leik vopnfirðinga. Gæti liðið verið betur undir baráttuna búið því fyrir utan æfingaleysið (þá koma meðfæddir hæfileikar sumra sér vel) er ekkert nafn komið á liðið, enginn liðsbúningurinn né heldur stigatafla í húsinu. Hefur því raunar verið fleygt að það sé með ráðum gert, að gefa stöðuna ekki upp, og fara með úrslitin sem trúnaðarmál þeirra er í húsinu dvelja í það og það sinnið. Þessi saga er þó óstaðfest.
Eftir því sem heimildarmaður hefur komist næst hefur verið boðað til æfingar í kvöld kl. 19:30 þar sem farið verður yfir helstu leikkerfin og veikleikar andstæðingsins útpældir. Sá sem þetta ritar hefur við og við fengið að vera með fyrir þær sakir að hann getur hlaupið – og munu þá hans helstu kostir í körfuknattleik vera upptaldir – meðan aðrir fá að vera með að því þeir geta skotið og enn aðrir af því þeir geta hvoru tveggja. Alls munu okkar menn leika 10 leiki í bikarkeppninni, 5 heima og annað eins að heiman. Og sum sé kl. 20:00 n. k. miðvikudag er komið að fyrsta leik úrvalsliðsins vopnfirska og hver veit nema gamlir taktar taki sig upp og okkar menn bíti hressilega frá sér. Fá þeir alltént allra bestu baráttukveðjur sendar á þessum vettvangi – áfram körfuboltalið Vopnafjarðar!