Í nýju fréttabréfi Þróunarfélags Austurlands er frá því greint að meðal verkefna sem hlotið hafa styrk í gegnum Vaxtarsamning Austurlands, VAXA, er Heiðarbýlaverkefnið svo nefnda. Á þessum vettvangi hefur verið frá verkefninu greint en meginmarkmið verkefnis þessa er tvíþætt; annars vegar að skera sjálfsmynd einstakra byggðarlaga, hins vegar að byggja upp menningartengda ferðaþjónustu.
Í fréttinni segir að ætlunin sé að vinna að varðveislu menningararfleiðar í formi texta og mynda með notkun nýjustu tækni. Hrund Snorradóttir hjá Menningar- og fræðslusetrinu í Kaupvangi hefur verið að vinna að því að safna heimildum um heiðarbýli og vesturferðir af svæðinu auk þess að yfirfara söfn gamalla mynda undir leiðsögn fræðimanna.
Til þess að koma þessu samstarfi í markvissan farveg er áformað að flétta þessar tvær fræðakvíslar saman í námskeið, hvar markmiðið verður að veita hinum fjölþætta fróðleik í hagnýta farvegi. Þetta yrði um leið tilraunaverkefni sem nýta má reynsluna af um land allt. 
Sum sé hið besta mál og væntum við vopnfirðingar mikils af - sem og aðrir áhugamenn um landið.