Svo sem greint var frá í fyrradag á þessum vettvangi mun körfuboltinn fara að rúlla - svífa/fljúga kannski fremur - hér á Vopnafirði með þátttöku meistaraflokksliðs Einherja í Bólholtsbikarkeppninni. Má segja að stund sannleikans sé runnin upp, kl. 20:30 í kvöld er leikið gegn SE í íþróttahúsinu við Lónabrautina.
Í auglýsingu sem send hefur verið heimildarmanni kemur fram að allir áhugamenn séu velkomnir í íþróttahúsið svo lengi sem húsrúm leyfir - endurgjaldslaust vel að merkja. Er um að gera að sýna stuðning sinn í verki og mæta í íþróttahúsið til þess að leggja okkar mönnum lið og gefa t. a. m. Meistaradeildinni frí þetta kvöld enda ekki á hverju kvöldi sem boðið er uppá meistaraflokksleik í körfuknattleik á Vopnafirði.
Annars hefur heimildarmanni skilist á sumum leikmanna okkar að best færi á að heyja keppni fyrir luktum dyrum, alltént meðan menn eru svona að átta sig á aðstæðum og þreyfa á styrk sínum. Hins vegar er vitað að innan okkar hóps eru hæfileikar og óþarft að bera kvíðboga í brjósti áður en að leik kemur þó sjálfsagt sé að bera virðingu fyrir andstæðingi sínum sama hver í hlut á. Með séra Stefán Má í fararbroddi má vænta að við njótum ákveðins forskots á andstæðingana, svona ögn nær máttarvöldunum - og víst verður þetta bara ánægjulegt - og saman hrópum við áfram körfuknattleikslið Einherja!