Ánægjulegt var að koma í íþróttahúsið í gærkvöldi þegar körfuboltalið Einherja atti kappi við SE frá Egilsstöðum því fjölmennt var og stuðningur við okkar menn með ágætum. Nú fór það svo að heimamenn töpuðu með 16:24 - í körfubolta og ekki hand svo það sé á hreinu. Eins og leikurinn spilaðist læðist að heimildarmanni sá grunur að Einherjadeild körfuboltans hefði unnið sigur þó ekki væri nema fyrir 2-3 æfingar til viðbótar við þessa einu sem menn tóku fyrir bikarleikinn - með fullri virðingu fyrir andstæðingnum.
Boðið var uppá mikla baráttu, kannski ekki fagran körfubolta en menn gerðu hvað þeir gátu og allir er inn á vellinum voru virtust hafa ánægju af - og hvernig á öðru vísi að vera, loksins alvöru körfubolti á Vopnafirði. Á leik okkar manna sást að samæfingu skortir, boltinn vann lítið fyrir liðið þar sem hver og einn reyndi uppá sitt eindæmi að koma sér að körfu andstæðingsins. Þessa vankanta sníða menn af á komandi æfingum og leikjum en í leik gærkvöldsins var af öðrum ólöstuðum Svanur Aðalgeirsson sá sem dró þyngsta hlassið og gaf stórvöxnum miðherjum SE ekki þumlung eftir.
Áhorfendur fjölmenntu í húsið og óskandi að þeir geri það aftur; gefi okkar mönnum fleiri tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og væri frábært ef hér skapaðist "ljónagryfjustemning" með tilheyrandi hvatningarópum aðdáenda okkar pilta.
Meðfylgjandi er myndasyrpa frá leik gærkvöldsins, þær tala sínu máli studdar af texta heimildarmanns.