Á heimasíðu Hafrannsóknarstofnunar, www.hafro.is, er frá því greint að allt frá 04. febrúar sl. hafi rannsóknarskipið Árni Friðriksson verið við rannsóknir og mælingar á stærð loðnustofnsins, m. a. til að fylgjast með loðnugöngum við austan- og sunnanvert landið. Stærð veiðistofnsins samkvæmt þessum mælingum er 608 þúsund tonn af kynþroska loðnu.
Frá því er ennfremur greint að niðurstöður febrúarsleiðangurs hafrannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar gefi tilefni til þess að auka við loðnukvótann á vertíðinni. Ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar til sjávarútvegsráðherra er að kvótinn verði aukinn um 65 þúsund tonn eða úr 325 þúsund tonnum í 390 þúsund. Veiðistofninn er samkvæmt þessum nýjustu mælingum metinn tæplega 790 þúsund tonn í gildandi aflareglu er miðað við að 400 þúsund tonn verði skilin eftir til hrygningar.
Fari ráðherra að ráði Hafrannsóknastofnunar mun loðnukvóti skipa HB Granda aukast um rúmlega 10
þúsund tonn og verða alls um 57 þúsund tonn á vertíðinni. Búið er að veiða um helming þess magns en eftirstöðvar kvótans eru nú um 28 þúsund tonn. Nú er loðnu að finna syðra og því berst hún að landi á Akranesi, þar sem farið er að frysta hana. Lundey NS hefur verið að loðnuveiðum við Reykjanes og kom skipið til Akraness sl. miðvikudag með um 1.100 tonna loðnufarm. Stutt er á miðin frá Akranesi og tók siglingin þangað aðeins um tvo tíma.