Föstudaginn 19. febrúar sl. komu nemendur grunnskólans saman í íþróttahúsinu til þess að sýna okkur hinum hvað þau lærðu í fótamennt í vikunni hjá Hinrik danskennara. Og víst höfðu nemendur ýmislegt numið af meistaranum og var að venju ánægjulegt að sjá til þeirra.
Heimildarmaður staðsetti sig á pallinum ofan gólfs og náði að taka nokkrar myndir og lætur þær fylgja með þó fæstar séu þær af gæðum. Sem fyrr greinir var, líkt og ávallt er, sérlega ánægjulegt að horfa á krakkana dansa enda löngu vitað að vart er til nokkuð skemmtilegra en einmitt að hreyfa sig við taktfasta tónlist. Meira af dansi fyrir alla.