Fyrri áætlanir, þ. e. með viðbótarheimild uppá 125 þúsund tonn - til viðbótar við þau 200 þús. sem samþykkt var að veiða í upphafi loðnuvertíðar - gerðu ráð fyrir að myndu skila hátt í 15 milljörðum í formi útflutningsverðmætis. Nú þegar samþykkt hefur verið að bæta við 65 þús. tonnum og fara í alls 390 þús. tonn má gera ráð fyrir að aflaverðmætið muni mælast í nærri 18 milljörðum.
Hluti af heildaraflamarki af loðnu kemur í hlut Norðmanna og Grænlendinga samkvæmt samningi þjóðanna.
Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, er frá því greint í gær að loðnuveiði hafi verið með ágætum frá því að skipin fóru að nýju til veiða eftir stutt hlé sem varð á úthaldinu vegna verkfallsboðunar. Mikill hraði hefur verið á loðnugöngunni og er sú loðna, sem lengst er gengin, nú að ganga norður fyrir Snæfellsnes. Veiðisvæðið var í morgun um sex til sjö sjómílur vestur af Öndverðarnesi og þykir mönnum loðnan ganga óvenju djúpt fyrir Snæfellsnes að þessu sinni.
Nú eru fjögur skip HB Granda á loðnuveiðum en Víkingur AK var sendur til veiða sl. föstudagskvöld og var landað fullfermi úr skipinu á Vopnafirði í fyrradag, eða um 1.400 tonnum. Lundey NS hefur farið í þrjár veiðiferðir frá því um miðja síðustu viku og var verið að ljúka löndun úr skipinu á Akranesi nú um miðjan dag. Aflinn í þessum veiðiferðum er samtals um 3.000 tonn. Faxi RE er nú á leiðinni til Vopnafjarðar með um 1.150 tonna afla en aflinn í tveimur veiðiferðum þar á undan var um 2.000 tonn. Ingunn AK kom til Vopnafjarðar fyrir helgina með um 1.500 tonna afla og er löndun nú að hefjast á um 1.300 tonna afla skipsins á Akranesi.
Samkvæmt upplýsingum frá uppsjávardeild HB Granda eru nú óveidd um 20 þúsund tonn af um 59 þúsund tonna loðnukvóta félagsins á þessari vertíð. Má gera ráð fyrir að 1/2 þessa 20 þús. tonna falli í hlut vopnfirðinga þó loðnan finni sig orðið langa vegu frá norð-austurhorninu.