Snjór á Vopnafirði ... í einn dag

23.02 2011 - Miðvikudagur

Veðurfar febrúarmánaðar, þorrinn, hefur um fátt minnt á að tíminn er miðvetur. Svo mild hefur tíðin verið að minnir á útmánuði árs, vorið en ekki hávetur. Um leið og við fögnum hinu milda veðurfari kemst maður ekki hjá að velta fyrir sér hvert hinn íslenski vetur fór - og hvort hann muni skila sér til baka. Bar nýrra við í gær er loks var hvít jörð á láglendi Íslands, austurhluta þess a. m. k.

Heimildarmaður hefur einstakt yndi af að rölta með myndavélina þegar tóm gefst til og í gær myndaðist glufa sem nýtt var til að mynda næsta nágrenni í því yndislega veðri sem bauðst; hvít mjöll böðuð geislum sólar í vindstillu er óskaveður að vetri. Þeir dagar hafa fáir verið sem jafnast á við þennan og er þá ekki sjálfsagt að gefa fjarlægum vinum síðunnar nasasjón af því sem við hin upplifðum með fáeinum myndum er hér fylgja.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir