Fyrirhuguðum fargjaldahækkunum mótmælt

24.02 2011 - Fimmtudagur

Á fundi hreppsnefndar Vopnafjarðarhrepps þann 17. febrúar sl. var til umræðu tekið fyrirhugaðar fargjaldahækkanir í innanlandsflugi. Mælist hreppsnefnd til að innanríkisráðherra hlutist til um að fyrirhugaðar hækkanir verði í hóf stilltar - ályktun, sem birtist hér á síðunni, verður svo send innanríkisráðherra og samgöngunefnd Alþingis.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sagði á Alþingi þann 31. janúar sl. að reynt yrði að hlífa innanlandsfluginu gagnvart niðurskurði þegar Einar K. Guðfinnsson þingmaður sjálfstæðisflokksins gagnrýndi fyrirhugaða hækkanir á gjöldum sem því tengjast. Samkvæmt frumvarpi sem iðnaðarráðherra lagði fyrir þingið um miðjan janúar er stefnt á að notendur flugþjónustunnar greiði fyrir hana í auknum mæli og skatttaka vegna hennar verði minnkuð.

 

Framlag ríkisins til ISAVIA, sem sér um rekstur flugvalla landsins, verður skorið niður um röskar 400 milljónir á þessu ári og gjaldskrá fyrirtækisins hækkar í kjölfarið. Auknar álögur á innanlandsflug þýða hækkun fargjalda segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands.

 

Hlutverk Isavia er að annast rekstur og uppbyggingu allra flugvalla og lendingarstaða á Íslandi. Einnig annast Isavia alla flugleiðsöguþjónustu sem Ísland veitir fyrir alþjóðlegt flug og innanlandsflug. Ríkið á flugvelli landsins en Isavia rekur þá samkvæmt þjónustusamningi við ríkið.

 

En aftur að fundi hreppsnefndar sem áður er vitnað í, þar segir:

 

Gerð var grein fyrir fyrirhuguðum hækkunum á flugfargjöldum innanlands, sem fyrirhugað er að taki gildi 1. apríl nk.   Hækkanir þessar hafa veruleg áhrif á ferðakostnað landsbyggðarfólks, til viðbótar við ört hækkandi olíuverð, en sem kunnugt er þarf fólk af landsbyggðinni að sækja mikið af opinberri þjónustu til höfuðborgarinnar og annarra stærri byggðakjarna.

 

Töluverðar umræður urðu síðan um þessi mál, þar sem fundarmenn lýstu áhyggjum sinum vegna þessara fyrirhuguðu hækkana.

 

Í framhaldi var lögð fram svofelld ályktun:

 

„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps mótmælir fyrirhuguðum hækkunum á innanlandsflugi og mælist til þess að innanríkisráðherra sjái til þess að fyrirhuguð hækkun lendingargjalda, fluggjalds flugvallargjalds, farþegaskatts og annarra gjalda verði stillt í hóf og séð til þess að þau þurfi ekki að hækka flugfargjöld innanlands frekar en orðið er.“

 

Hreppsnefnd samþykkti fyrirliggjandi ályktun samhljóða og felur sveitarstjóra að senda hana til Innanríkisráðherra og samgöngunefndar Alþingis.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir