Mottumars hefst á nýjan leik

01.03 2011 - Þriðjudagur

Því hefur réttilega verið haldið fram að karlmenn hafi skort samstöðu, eitthvað sem sameinar mislitan hópinn. Við, 1/2 landsmanna - og mannkyns ef út í það er farið - höfum horft með nokkrum öfundaraugum uppá samstöðu kvenna í hinum ýmsu málum; þannig var greint frá ótrúlegri samstöðu kvenna á Kvennafrídaginn 26. október sl., ríkri samstöðu á Baráttudegi kvenna 08. mars - 19. júní er helgaður kvenréttindum og verið minnst um langt árabil, Kvennahlaup ÍSÍ er í júníbyrjun og sjálfsagt má tína fleiri daga til ef leitað er eftir því. Konurnar eiga sinn Konudag eins og við okkar Bóndadag svo jafnt er á með kynjunum komið þar. Nú mun vera komið að okkur strákunum - það er kominn mottumars!

Eins og okkur flestum þykir hugmyndin um (hor)mottu fyndin og menn, sumir hverjir a. m. k., sérlega skrýtnir komnir með strítt hár á neðanvert andlitið þá er fullkomin alvara á bak við hugmynd Krabbameinsfélags Íslands. Á heimasíðu félagsins, www.krabb.is, segir:

Meira en 700 karlar greinast ár hvert með krabbamein hér á landi. Nú geta 61% karla sem greinast vænst þess að lifa í fimm ár eða lengur en hlutfallið hjá konum er 66% svo að karlarnir þurfa að taka sig á. Krabbameinsfélagið leggur áherslu á að karlar geri sér grein fyrir helstu einkennum krabbameina og leiti læknis verði þeir varir við þau. Þá skipta forvarnir einnig gríðarlegu máli í baráttunni við krabbamein en rannsóknir benda til að hægt sé að koma í veg fyrir eitt af hverjum þremur tilfellum með heilbrigðum lífsháttum almennt svo sem með því að reykja ekki, hreyfa sig reglulega og borða hollan mat. Batahorfur hafa batnað mjög á síðustu áratugum en brýnt er að greina meinin snemma.

Varðandi "mottumars" segir síðan:

„Mottumars“ er yfirskrift mánaðarlangs átaks Krabbameinsfélags Íslands um karlmenn og krabbamein, sem hófst formlega í dag [í gær] þegar úrvalslið lögreglumanna og slökkviliðsmanna öttu kappi í íshokkí og skoruðu hvort á annað í liðakeppni í mottukeppninni. Átakið er tvíþætt, árvekniátak og fjáröflunarátak. Það sem safnast verður notað til að efla forvarnir og fræðslu, rannsóknir og ráðgjöf.

Er 1/2 íbúa sveitarfélagsins, þeir sem komnir eru til vits og ára, hér með minntir á að aldrei er of varlega farið, menn haldi vöku sinni meðvitaðir að enginn er óhultur. Það er ekkert að því að þreifa á miðsvæðinu ef því er að skipta, það gera karlmenn hvort eð er óumbeðið öllu jafna!

Að lokum eru karlmenn sveitarfélagsins hvattir til þátttöku í hinni stórskemmtilegu mottukeppni hvort sem menn hafi að markmiði að að taka þátt í keppninni um fegurstu mottuna eður ei. Áheit til styrktar Krabbameinsfélaginu eru að sjálfsögðu vel þegin - af báðum kynjum.

Meðfylgjandi er mynd af Heiner Brand, landsliðsþjálfara Þjórðverja í handknattleik, sá góði maður er sjálfkjörinn sem verndari hormottunar og ætti að vera heiðraður sérstaklega í þessum mánuði, mottumars!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir