Fyrirsögnin kemur af heimasíðu HB Granda, www.habgrandi.is, og segir allt sem segja þarf um stöðu loðnuveiða nú þegar vertíðarlok nálgast - verði ekki við kvótann bætt að nýju. Frá því er greint á heimasíðu fyrirtækisins að mjög góð loðnuveiði var við Snæfellsnes í fyrradag eftir að vindur gekk niður um hádegisbilið þann dag. Sjólag var þó mjög erfitt og lentu mörg skipanna í því að rífa næturnar.
Meðal þeirra sem lentu í að rífa næturnar var Lundey NS. Að sögn Arnþórs Hjörleifssonar, skipstjóra á Lundey, var ekkert veiðiveður á laugardeginum en um leið og skipin gátu athafnað sig upp úr hádeginu í fyrra hafi fengist mjög góð köst. Þung kvika var á veiðisvæðinu sunnan við Malarrif og sjólag með allra erfiðasta móti.
Áfram segir: ,,Menn lentu í því að missa næturnar niður og rífa og það gerðist hjá okkur,“ segir Arnþór en Lundey er nú í höfn í Reykjavík þar sem verið er að gera við nótina. Til marks um aflabrögðin í gær má nefna að fjögur skip HB Granda fengu alls um 4.700 tonn af loðnu í gær. Eftirstöðvar loðnukvóta félagsins eru um 9.000 tonn en það svarar til þess að hvert skipanna eigi eftir um tvær veiðiferðir á vertíðinni, þ. e. a. s. ef ekki verður aukið við kvótann.
Heimildarmaður setti sig í samband við Magnús Þór Róbertsson, vinnslustjóra, viðvíkjandi stöðu mála á Vopnafirði. Sagði Magnús að eðlilega færi bróðurpartur aflans á Akranes þar eð loðnuna er að finna þar. Að undanförnu hafi Vopnafjörður fengið 4 hrognaskip, Víkingur AK 100, sem er að halda til veiða að nýju þegar þetta er skrifað, kom inn aðfaranótt þriðjudagsins með um 1200 tonn og á morgun er von á Ingunni AK 150 með um 1500 tonn.
„Að sjálfsögðu viljum við meira og getum tekið á móti meiru. Hins vegar getum við sannarlega ekki kvartað, vertíðin hefur verið okkur hagstæð. Þess ber að geta að hreinsunarbúnaðurinn hér er afburðagóður og nýja hrognaþurrkunin hefur gjörbreytt öllum aðstæðum fyrir fyrirtækið, raunar algjör bylting. Áður var ekkert pláss til að drena hrognin en þó menn hafi gert sitt ýtrasta gekk ekki sú aðferð ekki sem skyldi sem beitt var - en þar var vökvinn sogaður úr hrognunum. Allt hefur gengið að óskum, þakka ég það meðal annars framúrskarandi góðum starfsmönnum. Annars er kvótinn að klárast, ein ferð á skip eða svo en þau ná að veiða um 6.000 tonn samanlagt“.
Nú styttist í að loðnan, sem lengst er gengin, fari að hrygna , það gerist eftir einhverja daga þó. Nóg mun vera af loðnu sunnar og austar.
,,Menn hafa orðið varir við góðar lóðningar við suðurströndina og fyrir einum fjórum dögum lóðaði hjá okkur á loðnutorfu austur við Ingólfshöfða. Menn hafa ekkert skoðað þetta frekar því öll áhersla er lögð á að veiða hrognaloðnuna sem lengst er gengin,“ eftir Arnþór Hjörleifsson.