Helgi Valtýsson orti á sínum tíma hið yndislega kvæði Vorvindar glaðir og þó samkvæmt almanakinu sé enn langt til vorsins verður ekki hjá því komist að finna fyrir nærveru þess á degi sem þeim sem okkur býðst í dag, 03. mars annó 2011 - 5-8°C og sunnanrok! Heimildarmaður gekk út fyrir húsvegg hreppsskrifstofunnar og tók 3 myndir af morgunroðanum í eystri, hversu fagurt það getur verið þetta líf - hlustandi á Ellý Vilhjálms á Rás 1 og fegurðarinnar er notið!
Þó stundin sé ekki hin rétta verður ekki hjá því komist að láta kvæði Helga fylgja, svona til upprifjunar fyrir okkur er lásum skólaljóðin og þuldum upp þau kvæði sem okkur var ætlað að læra meðan enn var til KEA og SÍS - og menn gæddu sér á Lindubuffi og Cream Soda.
Vorvindar glaðir
Vorvindar glaðir,
glettnir og hraðir
geysast um lundinn rétt eins og börn.
Lækirnir skoppa
hjala og hoppa
hvíld er þeim nóg í sæ eða tjön.
Hjartað mitt litla, hlustaðu á,
hóar nú smalinn brúninni frá.
Fossbúinn kveður,
kætir og gleður
frjálst er í fjallasal.
Höfundur: Helgi Valtýsson