
Boðið var uppá einstaka stund í sal grunnskólans frá og með kl. 09:30 í morgun, Hafþór Róbertsson, kennari, er nefnilega 60 ára í dag - og það sem meira er, ungi maðurinn hefur kennt í heil 40 ár! Við erum því að tala um 100 ára afmæli í þessu sambandi og geri aðrir betur.
Skólafólk, starfsmenn og nemendur, höfðu undirbúið stundina af kostgæfni og það var sannarlega ósvikin undrun sem lesa mátti úr svip afmælisinsbarnsins er hann gekk í salinn þar sem hans beið hver einasti úr hópi skólafólks - hafði hópnum lukkast ætlunarverkið fullkomlega. Aðalbjörn, skólastjóri og kollegi Hafþórs til margra ára, mælti fyrir hönd skólans hlý orð til afmælisbarnsins.
Ýmislegt athyglisvert kom fram í tölu Aðalbjörns en á 40 ára ferli koma margir við sögu. Sagði Aðalbjörn miklar líkur á Hafþór hafi kennt foreldrum velflestra nemenda og mörgum úr hópi starfsmanna þó ekki hafi hann kennt skólastjóranum sjálfum. Hafþór var skólastjóri um 8 ára skeið en upphafið er rakið allt aftur til ársins 1971, þá hafði t. a. m. ekki verið hægri umferð á Íslandi nema í 3 ár! Reikna má með um 600 ungmenni hafi útskrifast frá Vopnafjarðarskóla á tímabilinu og ekki undir 4000 nemendur verið við skólann.
Samstarfsmenn um og yfir 140 á þessum 40 árum svo einn og einn hefur einhverja sögu af Hafþóri að segja - flestar örugglega góðar :-) Sjálfur sagði hræður Hafþór að mikilvægt væri fyrir hvern og einn að vernda barnið í sjálfum sér, hann hefði notið þeirra kosta að vera innan um ungmenni bróðurpart lífs síns og hefði þrátt fyrir að eldast hið ytra ávallt alið á barninu í hjarta sínu. Um það getur hver sem er vitnað að alltaf er drengurinn tilbúinn í að taka þátt í einhverjum gáska þó í upphafi hafi verið kannski staðið ögn á bremsunni.
Að lokum segjum við öll: Heill þér sextugum, Hafþór!