Árleg styrkveiting úr Menntasjóði Lindarinnar fór að þessu sinni fram mánudaginn 07.mars sl. í félagsheimilinu Miklagarði. Í þrettánda sinn eru styrkir veittir úr sjóðnum, styrkir til vopnfirskra kvenna einkum og sér í lagi. Á hinn bóginn eru reglur Menntasjóðs skilgreindar á þann veg að heimilt er að veita karlmönnum styrki sé það mat sjóðsstjórnar að þeir verðskuldi styrkveitingu – og það var einmitt að þeirri stundu komið að þessu sinni en styrkþegar voru 3 að þessu sinni.
Ágústa Þorkelsdóttir, formaður Kvenfélags Lindarinnar, hafði orð fyrir stjórn að þessu sinni en frá öndverðu hefur oddviti sveitarfélagsins setið í stjórn menntasjóðsins. Nú vill svo til að sama persónan er formaður Menntasjóðs Lindarinnar og oddviti sveitarfélagsins, Þórunn Egilsdóttir,og sat prúð og hlýddi á tölu Ágústu eins og aðrir viðstaddir. Ennfremur situr Steingerður Steingrímsdóttir i stjórn. Styrkþegar að þessu sinni eru: Sólrún Dögg Baldursdóttir, kennaranemi við HA, Sigríður Jóhannesdóttir, nemi við Garðyrkjuskóla ríkisins og Ólafur B. Valgeirsson, nemi í ferðamálafræðum við Hólaskóla.
Frá 1998 að Menntasjóður hóf styrkveitingar hafa liðlega 40 konur hlotið styrk úr sjóðnum - og einn karlmaður hér með. Nýtur sjóðurinn árlegs stuðnings sveitarfélagsins og stendur hann vel fjárhagslega. Ljóst er að þó hver upphæð sé kannski ekki ýkja há er stuðningurinn hverjum styrkþega mikilvægur; hann er óræk sönnun þess að fólk í samfélaginu vopnfirska kann að meta þann dugnað sem hlutaðeigandi sýnir.
Til þess er tekið dugnaður vopnfirðingar við að leita sér mennta á sl. árum í gegnum fjarnám einkum og sér í lagi. Hefur menntunarstig samfélagsins í ljósi þessa hækkað verulega en afar brýnt er að okkur haldist á því dugnaðarfólki sem á tíðum samhliða starfi sest á skólabekk. Kvenfólkið hefur verið sérlega duglegt og verið karlmönnum hvatning til góðra verka. Með starfsemi starfsstöðvar Þekkingarnetsins í Kaupvangi hafa opnast áður óþekktir möguleikar og er liður í að betra og fjölbreyttara mannlíf dafni á Vopnafirði.