Samkvæmt samkomulagi Vopnafjarðarhrepps við Félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs sinnir Félagsþjónustan á Héraði allri félagslegri þjónustu við íbúa Vopnafjarðar. Til Vopnafjarðar kemur, skv. samkomulaginu, félagsráðgjafinn Hlín Stefánsdóttir einu sinni í mánuði hverjum - og verður hér þriðjudaginn 15. mars n. k. Hér gefur að finna bréf Guðrúnar Frímannsdóttur, félagsmálastjóra Fljótsdalshéraðs, er varðar samkomulag sveitarfélaganna.
Félagsþjónusta á Vopnafirði
Samkvæmt samkomulagi Vopnafjarðarhrepps við Félagsmálanefnd Fljótsdalshéraðs sinnir Félagsþjónustan á Héraði allri félagslegri þjónustu við íbúa Vopnafjarðar.
Í því sambandi gæti verið ágætt að spyrja sig eftirfarandi spurninga ;
· Hefur þú þörf fyrir félagslega ráðgjöf ?
· Eða jafnvel fjárhagsaðstoð frá sveitarfélaginu ?
· Gæti heimaþjónusta komið þér að gagni ?
· Þarft þú hjálp til að rjúfa félagslega einangrun eða stuðning til að auka á félagslega færni þína í daglegu lífi ?
· Hvað með aðstoð við að komast út á vinnumarkaðinn ?
· Er uppeldisleg ráðgjöf eitthvað sem gæti gagnast þér ?
Séu aðstæður þínar þannig að félagsleg þjónusta af einhverju tagi geti bætt lífsgæði þín er rétt að hvetja þig til þess að nýta þjónustuna.
Félagsráðgjafi kemur til Vopnafjarðar:
Að minnsta kosti einu sinni í mánuði mætir Hlín Stefánsdóttir, félagsráðgjafi á svæðið og sinnir þeim erindum sem íbúar sveitarfélagsins óska eftir hverju sinni. Til þess að mæla sér mót við Hlín er hægt að hafa samband á eftirfarandi hátt:
· 473 1300 Sveitarstjórnarskrifstofa Vopnafjarðar
· 470 0705 Félagsþjónusta Fljótsdalshéraðs
· hlin@egilsstadir.is netfang Hlínar Stefánsdóttur, félagsráðgjafi
· gudrunf@egilsstadir.is netfang Guðrúnar Frímannsdóttur, félagsmálastjóra
Fyrir hönd Félagsmálanefndar Fljótsdalshéraðs,
Guðrún Frímannsdóttir,
Félagsmálastjóri
Er rétt að fólk, sem vill nýta sér þjónustu Félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs, að ofangreint í huga.