Kominn er ellefti dagur marsmánaðar, liðinn er 1/3 af mottumars. Skv. fréttum fjölmiðla hefur gengið með ágætum sú söfnun sem Krabbameinsfélag Íslands stendur fyrir samfara hinu jákvæða átaki sem í mottumars felst. Öllu gamni fylgir nokkur alvara, í þessu tilfelli mikil en vonandi skilar átakið sínu - að þeir sem telja mottuna óþarfa líti á þreifingar á miðsvæði líkamans sem sem þarfaverk. Á www.visir.is er viðtal við Lailu Sæunni Pétursdóttur hjá Krabbameinsfélaginu, sem segir samstöðu karlmanna með miklum ágætum.
„Aðsóknin hefur verið hreint ótrúleg og fyrstu vikuna komu um 100 þúsund manns inn á síðuna. Frá upphafi átaksins í ár hefur síðunni verið flett yfir 1,5 milljón sinnum, enda skemmtilegt að vafra um síðuna og skoða myndir af hressum mottuköppum," segir Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðsstjóri Krabbameinsfélags Íslands, í tilkynningu.
Hún segir að mikill og skemmtilegur keppnisandi sé á mottuvefnum en tæplega sjö og hálf milljón króna hafa safnast í áheitum og fer vefurinn enn hraðar af stað í fyrra. „Við viljum minna menn á að það er ekki of seint að skrá sig til leiks og skorum sérstaklega á hressa hópa og öflug fyrirtæki að sameinast í liðakeppninni því keppnin stendur alveg til 31. mars."
Marta María á www.pressan.is er skemmtilegur skríbent, í sl. viku skrifaði hún m. a. um mottumars:
Mottumars er eitt af þessum átökum sem setja svip sinn á samfélagið. Í fyrra var metþátttaka og voru ótrúlegustu kappar komnir með mottu. Yfirvaraskegg er og hefur verið umdeilt um langt skeið. Sumum finnst það perralegt meðan öðrum finnst það hommalegt. Enn öðrum finnst þeir eldast um aldarfjórðung með mottuna.
Ég játa að það fer alls ekki öllum körlum jafn vel að vera með mottu (það þarf ekkert að deila um það). En þegar mottumars er annars vegar skiptir það engu máli. Það er bara svo dásamlegt að sjá allskonar menn með allskonar mottur. Það lífgar upp á hversdaginn og styður um leið gott málefni. Karlar eru yfirleitt sætir 335 daga á ári, af hverju ekki að flippa smá í 30 daga?
Þeir sem létu slag standa í fyrra sýndu umheiminum að þeir hefðu allavega húmor, þótt mottan væri kannski ekki að gera mikið fyrir heildarmyndina ... eins og sagt er.
Ég hef verið að ýta á karlana í kringum mig að fara nú að safna mottu og hafa þeir verið tregir til. Einn sagði að fjölskyldan myndi afneita honum ef hann gerði þetta aftur, annar sagðist hafa verið eins og meðlimur í Village People, sá þriðji kvartaði yfir því að fólk hefði reynt að ávarpa hann á pólsku og sá fjórði sagðist hafa orðið fyrir miklu aðkasti. Auðvitað eru til milljón afsakanir. Það sakar samt ekki að prófa, bara fyrir málstaðinn!
Nákvæmlega, er ekki hægt að leggja eitt og annað á sig fyrir góðan málstað? Svona, niður með rakvélina og upp með mottuna, enn eru 20 dagar til stefnu :-)
*Meðfylgjandi er mynd af heimildarmanni með netta mottu á sl. ári, myndarlegri verður hún í ár - og það þó að frúin segi að eiginmaðurinn líti (næstum því) út eins og ókunnur karl!