Menningarfulltrúi Austurlands á Vopnafirði

11.03 2011 - Föstudagur

Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi Austurlands, heimsækir Vopnafjörð þriðjudaginn 15. mars n. k. Loks hefur samkomulag náðst á milli ráðsins og ráðuneytis menningarmála um framlag til menningar á Austurlandi og á grundvelli þess býðst menningarvitum fjórðungsins að sækja um styrki. Mun Signý eins og venjulega bjóða hinum áhugasömu að ræða hugmyndir og koma með hollráð varðandi mögulega umsókn.

Fram kemur í auglýsingu Menningarráðs Austurlands að umsóknarfrestur er til 30. mars n. k. og úthlutun muni fara fram í apríl - umþóttunartími stjórnar er því lítill en tíminn er líka naumur orðinn með hliðsjón af viðburðum sumarsins. Kemur ennfremur fram að umsækjendur verði að skila af sér greinargerð fyrir sl. ár hafi þeir hlotið styrk á því ári. Allar nánari upplýsingar er síðan að finna á heimasíðu ráðsins, www.menningarrad.is, og senda má tölvupóst á Signý vía menning@menningarrad.is

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir