
Allt á sér upphaf og endi, það á sannarlega við um loðnuveiði. Undir lok síðustu viku lá fyrir að meira yrði ekki veitt á vegum HB Granda á loðnuvertíðinni, starfsmenn fyrirtækisins á Vopnafirði snúa sér þar með að öðrum verkum uns kemur að hinni næstu vertíð. Vopnafjörður er vertíðarstaður þar eð þannig hagar náttúran því til hvað varðar uppsjávarfisk, síld, loðnu og makríl - og kolmunna ef út í það er farið. Heimildarmaður hafði samband við vinnslustjóra HB Granda, Magnús Þór Róbertsson í morgun og spurðist fregna.
"Jú, vertíðinni er lokið hvað okkur varðar. Við taka þrif og undirbúningur fyrir komandi sumarvertíð. Hluti starfsmanna fer í afskurðinn í frystihúsinu, hinn sinnir því sem gera þarf varðandi undirbúning sumarvertíðar, makríl- og síldarvertíðar".
Aðspurður um þær fregnir að verið væri að færa störf úr landi á haf út, sbr. ákvörðun sjávarútvegsráðherra hér að lútandi. "Ég er eiginlega mest hissa á að þetta hafi ekki farið hærra en þetta er auðvitað alvarlegt mál fyrir sjávarútvegsbyggðir eins og okkar. Allar vinnslur sem málið varðar hafa lagt í mikinn kostnað til að bæta vinnslu á makríl og hafa búið sig undir komandi vertíð samkvæmt því".
"Engu að síður miðum við allan okkar undirbúning við að hingað muni koma óbreyttur kvóti á sumarvertíðinni en ég reikna með að vinnsla verði komin á fullt skrið eftir sjómannadag á makríl og síld líkt og á síðasta ári. Eftir jafn góðar vertíðir erum við bjartsýn og vel lítur út með starfsmannamál".
Hvað um kolmunnan? "Kolmunni er liðin tíð - í bili að minnsta kosti. Enginn kvóti er gefinn út en auðvitað væri það hið besta mál að vinna hann áfram og fylla þannig í eyðurnar. Annars eru öll teikn á lofti að okkur muni vegna vel áfram og ef horft er til haustsins að loðnuvertíð verði hafin í októberbyrjun", sagði vinnslustjórinn Magnús Þór að lokum.
Á heimasíðu HB Granda, www.hbgrandi.is, segir svo:
Úthlutuðum loðnukvóta skipa HB Granda á þessari vertíð var náð fyrr í dag og tók áhöfnin á Ingunni AK síðasta kastið. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjávarsviðs félagsins, er loðnuveiðunum þar með lokið á vertíðinni að öllu óbreyttu. Aðeins svokölluð vestanganga loðnu gæti orðið til að aukið yrði við kvótann.
Heildarkvóti skipa HB Granda á vertíðinni var rúmlega 61 þúsund tonn og þar af eru um 1.900 tonn sem bætt var við kvótann í byrjun vikunnar. Ástæðan er sú að grænlensk skip náðu ekki að veiða aflaheimildir sínar á vertíðinni og því var hægt að bæta við rúmlega 10.200 tonnum við kvóta íslensku skipanna. Sá viðbótarkvóti mun síðan dragast frá úthlutuðu aflamarki Íslendinga á næstu vertíð. Kvóti HB Granda nú er sá mesti síðan á vertíðinni 2005 en þá nam kvótinn um 122 þúsund tonnum. Minnstur var kvótinn á árinu 2009 en þá fengu skipin aðeins leyfi til að veiða um 3.000 tonn af loðnu.
Að sögn Vilhjálms hafa hvort tveggja veiðar og vinnsla gengið mjög vel þrátt fyrir rysjótt tíðarfar. Hrognavinnsla og -frysting stendur enn yfir á Akranesi og Vopnafirði. Lokið var við að vinna úr um 600 tonna afla Víkings AK á Akranesi í morgun og þar er nú verið að vinna úr um 1.000 tonna afla Faxa RE. Lundey NS er á leið til Vopnafjarðar með um 1.150 tonna afla en von er á skipinu til hafnar upp úr hádegi á morgun. Ingunn er enn á miðunum en von er á skipinu til Akraness í kvöld eða nótt og fer aflinn til vinnslu um leið og búið verður að vinna úr afla Faxa.