Jákvæð samskipti

15.03 2011 - Þriðjudagur

Sóknarprestur okkar vopnfirðinga, sr. Stefán Már Gunnlaugsson, hefur sýnt það á þeim tíma sem hann hefur þjónað sóknum sínum að hann er einkar duglegur og kemur víða við. N. k. sunnudag stendur vopnfirðingum til boða samskiptanámskeið, sem ætlað er fólki á öllum aldri - Jákvæð samskipti er yfirskrift þess. Það getur tæplega veikt námskeiðið að sá utan um það heldur skuli vera að norðan eins og sá sem þetta ritar ... þó líklega skipti það svona almennt séð nákvæmlega engu máli! Leiðbeinandi er Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni við Glerárkirkju og Evrópufræðingur.

Nánar um námskeiðið, sem sjálfsagt er að hvetja fólk til þess að sækja:

Sunnudaginn 20. mars, kl. 12:30-15:00 verður námskeið um Jákvæð samskipti í safnaðarheimili Vopnafjarðarkirkju. Námskeiðið hefst með léttum hádegisverði og leiðbeinandi er Pétur Björgvin Þorsteinsson.

Námskeiðið fer fram í fyrirlestraformi og er fyrir fólk á öllum aldri - fyrir foreldra, hjón, fólk í sambúð og einstaklinga sem vilja læra um samskipti.

Leiðbeinandi er þýðandi bókarinnar, Ást fyrir lífið, Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni í Glerárkirkju, Evrópurfræðingur (MA) og doktorsnemi.

Námskeiðsgjald er 2.000,- kr. á mann. Bókin Ást fyrir lífið seld á tilboðsverði á staðnum, kr. 2.000.-

Skráning hjá sóknarpresti, 463 1580 eða á netfangið: stefan.mar.gunnlaugsson@kirkjan.is





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir