Körfuknattleikur leikinn enn á ný!

16.03 2011 - Miðvikudagur

Heimildarmaður heimasíðu Vopnafjarðarhrepps hefur verið manna duglegastur að minna á heimaleiki körfuboltaliðs Einherja. Hefur það verið hans framlag til íþróttarinnar að þessu sinni en að sönnu hafði leiðtogi liðsins, Stefán Már, treyst mjög á að sá hinn sami yrði tiltækur í baráttuna þegar í alvöruna væri komið. Á annan veg fór og sjálfsagt hefur liðið þó ekki liðið neitt sérstaklega fyrir það, áhorfendur hins vegar alveg örugglega. Leikið er í kvöld á Vopnafirði.

Liðið lék leik um daginn og stóð sig með miklum ágætum þó sigur hefðist ekki, leiddu lengi vel fréttum samkvæmt. Langt fram í leik var allt í járnum og eftir því sem sagt er hefði sigur unnist hefðu þau fjölmörgu hraðaupphlaup sem liðið fékk skilað sér ofan í körfuna. Batamerki eru á leik liðsins, æfingarnar eru einkum og sér í lagi bundnar við leiki liðsins en sem fyrr býðst fylgismönnum liðsins tækifæri á að koma í íþróttahúsið án endurgjalds og hefst leikurinn kl. 20:30.

Brjáluð stemning og firna fjör í gryfjunni við Lónabraut ... og sem fyrr, áfram Einherji!





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir