Næst komandi sunnudag, þann 20. mars, býðst vopnfirðingum einstakt tækifæri að sjá og hlýða á einn albesta leikara samtímans, Ingvar E. Sigurðsson, í leikverkinu Djúpið. Hefst sýningin kl. 20:00 og er miðaverð kr. 2.500,-
Hefur verkið hlotið einróma lof gagnrýnenda sem og þeirra fjölmörgu áhorfenda sem verkið hafa séð. Verkið var heimsfrumsýnt í Oran Mor leikhúsinu í Glasgow í apríl 2009 og var einn þekktasti leikari Skotlands, Liam Brennan, í aðalhlutverkinu.
Viðtökur gagnrýnenda voru frábærar en Djúpið fékk fjórar stjörnur í The Scotsman. Í Borgarleikhúsinu er það sum sé stórleikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem fer með aðalhlutverkið, en verkið var skrifað með hann í huga. Jón Atli Jónasson, höfundur verksins, þreytti einmitt frumraun sína sem leikstjóri í Borgarleikhúsinu á sínum tíma.
Í stuttu máli er innihaldi Djúpsins lýst svo:
Bátur heldur úr höfn rétt fyrir dögun. Menn ýmist fleygja sér í koju eða halda sér vakandi á sígarettum, kaffi og veltingi. Enginn hefur minnsta grun um hvað er í vændum. Hér er komið nýtt, íslenskt verk sem leikhús um alla Evrópu eru nú í óða önn að tryggja sér sýningarréttinn á. Djúpið er frásögn úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Þetta er óður til allra þeirra fjölmörgu, íslensku sjómanna sem í gegnum aldirnar hafa haldið á djúpið.
Nú er um að gera að taka frá tíma og láta þetta einstæða tækifæri ekki framhjá sér fara en verkið er hingað komið fyrir atbeina menningarmálanefndar Vopnafjarðar.