Í gær stóð tónlistarskólinn fyrir tónleikum, öðrum í röðinni í vetur og áður en vetur er úti verða hinir 3ju haldnir. Steven Yates, tónlistarskólastjóri og kennari nemenda, opnaði dagskrána með því að leika á slaghörpuna og ávarpaði síðan tónleikagesti. Síðan rúllaði dagskráin af stað og er óhætt að staðhæfa að hver og einn einasti sem fram kom hafi staðið sig með mikilli prýði - Steven nær vel til nemenda sinna og gestir skemmtu sér vel.
Hér að neðan má finna myndasyrpu frá tónleikunum í gær og er sjálfsagt að líta þar við og sjá þessa duglegu nemendur tónlistarskólans á Vopnafirði.