Heimildarmaður gat ekki á sér setið og rölti fáeina metra um næsta nágrenni til að festa á filmu eitt og annað sem fyrir augu bar enda veður hið fegursta að afloknum minniháttar hvelli gærdagsins. Bjarki Björgólfsson gerði betur því strákurinn rölti út á Tangasporð og tók þar nokkrar myndir, sem hér birtast. Fer ekki á milli mála hverjar eru Bjarka og hverjar heimildarmanns; annar kann til verka, þ. e. Bjarki, en hinn hefur þó alltént bæði kjark og vilja til verks þó kunnáttuna skorti ...!
Enn á ný hefur veðuráttin snúist og vetur tekið við af vori, það er eins og sumir eigi erfitt með að ákveða sig hvert stefna skal vindi til langframa. Sunnanáttir mega svo sannarlega ríkja þegar tímabilið heitir sumar á almanakinu en fyrir því er nákvæmlega engin trygging eins og sl. sumur hafa verið.
Meðfylgjandi eru sem fyrr greinir nokkrar myndir, annars vegar af tanganum, hins vegar úr þéttbýlinu. Þær segja sína sögu og þó öllu megi breyta og snúa á hvolf hefur ekkert verið við þessar myndir fengist, þær segja söguna eins og hún var þá er þær voru teknar.