Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands var haldinn 05. mars sl. í Gamla Kaupfélaginu á Breiðdalsvík. Þeir sem ekki þekkja til stofnunarinnar, sem er ein s. k. stoðstofnana á Austurlandi, er Markaðsstofa Austurlands sjálfseignarstofnun sem stofnuð var 7. febrúar 1999 af sveitarfélögum á Austurlandi og ferðaþjónustuaðilum. Starfssvæðið nær frá Vopnafirði í norðri til Djúpavogshrepps í suðri, auk þess nær svæðið til hálendisins norðan Vatnajökuls og Möðrudals. Henni er ætlað að kynna og markaðssetja Austurland sem eina heild.
Starfssvið Markaðsstofu Austurlands er í dag þríþætt: að sinna upplýsingagjöf, markaðssetningu og þróunarstarfi auk þess að hafa umsjón með viðburðum í fjórðungnum.
Markaðsstofan rekur landhlutamiðstöðina á Egilsstöðum sem er opin allt árið. Markaðsstofa Austurlands er rekstraraðili upplýsingamiðstöðvarinnar og er rekstur hennar aðskilinn í bókhaldi félagsins. Samstarfsaðilar um upplýsingamiðstöðina eru Ferðamálastofa og Fljótsdalshérað,sem heimasveitarfélag. Þessi aðilar eiga allir sæti í sérstöku fagráði um rekstur upplýsingamiðstöðvarinnar.
Í stjórn MA sitja 7 manns, þar af einn fulltrúi SSA, aðrir frá aðilum ferðaþjónustunnar.
Eins og ávallt voru samþykktar ályktanir um málefni sem stjórn MA vill leggja áherslu á og vinna að svo sem kostur er. Á aðalfundinum voru þær 3 sem samþykktar voru, 1) ályktun um kynningarefni Íslandsstofu, 2) ályktun um rannsóknir í ferðamálum og 3) ályktun um hamlandi skatta.
1) Ályktun um kynningarefni Íslandsstofu: Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands haldinn á Breiðdalsvík 05. mars 2011 skorar á Íslandsstofu að huga vel að stöðu Austurlands í kynningarefni sínu við markaðssetningu og gæta jafnvægis á milli landshluta. Samþykkt einróma.
2) Ályktun um rannsóknir í ferðamálum: Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands haldinn á Breiðdalsvík 05. mars 2011 hvetur ríkið til dáða og mælist til þess að framlög til ferðaþjónustu og rannsókna henni tengdri, sem einnar stoðgreina íslensks atvinnulífs, verði til samræmis við framlög til annarra atvinnugreina. Samþykkt samhljóða.
3) Ályktun um hamlandi skatta: Aðalfundur Markaðsstofu Austurlands haldinn á Breiðdalsvík 05. mars 2011 lýsir yfir áhyggjum af síhækkandi eldneytisverði og þeim augljósu áhrifum sem það hefur á ferðaþjónustu á Austurlandi til hins verra. Fundurinn hvetur stjórnvöld til að endurskoða gjaldtöku sína af eldsneyti. Jafnframt hafnar fundurinn framkomnum hugmyndum um auknar álögur á innanlandsflug. Þar sem Austurlandsfjórðungur er lengst frá höfuðborgarsvæðinu og alþjóðaflugvellinum í Keflavík má leiða að líkum að því að öll hækkun á ferðakostnaði komi harðar niður á ferðaþjónustu á Austurlandi en annars staðar. Samþykkt samhljóða.