Sveitarstjórn ályktar um flugsamgöngur

21.03 2011 - Mánudagur

Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps kom saman til venjubundins fundar sl. fimmtudag. Eins og venja er lá fyrir fundi eitt og annað sem afgreiða þurfti frá hendi sveitarstjórnar, misstór mál eins og gengur. Tvö þeirra mála sem telja verður til hinna allra brýnustu snúa að samngöngum, annars vegar í lofti, hins vegar á landi. Sem 3ja mál á dagskrá fundarins var vegtengingin við hringveginn en sem kunnugt er hefur KNH haft verkið með höndum.

Um vegtenginguna segir í fundargerð:

Lagt fram svarbréf Innanríkisráðuneytisins dags. 2. mars. sl., sem er svar við bréfi Vopnafjarðarhrepps varðandi nýja tengingu Vopnafjarðar við Hringveginn, þar sem óskað er eftir því að stjórnvöld sjá til þess að nægjanlegt fjármagn verði til staðar fyrir lokakafla tengingarinnar. Í bréfinu kemur fram að ráðuneytið hefur sent erindið til Vegagerðarinnar til meðferðar við endurskoðun samgönguáætlunar.

Sveitarstjóra falið að ræða við vegamálastjóra um framgang málsins.

 

Málefni flugsins eru annars eðlis en á sinn hátt jafn brýnt fyrir sveitarfélag sem á jafn mikið undir góðum samgöngum og raun ber, staðsett fjarri öðrum þéttbýliskjörnum á Austur- og Norðurlandi. Sem 6. mál á dagskrá hreppsnefndarfundar var þjónustusamningur um flug til Vopnafjarðar og Þórshafnar til umræðu og ályktaði sveitarstjórn sérstaklega þar um.

 

Í fundargerð segir:

 

Þjónustusamningur ríkisins við Flugfélag Íslands um flug á flugleiðinni Akureyri-Vopnafjörður-Þórshöfn rennur út um næstkomandi áramót. Norðlandair yfirtók þennan samning þegar þeir tóku við flugleiðinni af Flugfélagi Ísalnds. Samningur þessi er alger forsenda fyrir því að unnt sé að halda úti flugi á þessari flugleið.  En sem kunnugt er þá er flogið alla virka daga vikunnar á þessari leið.

 

Lögð fram svofelld ályktun:

 

„Hreppsnefnd Vopnafjarðarhrepps vill vekja athygli samgönguyfirvalda á mikilvægi þess að þjónustusamningur milli Vegagerðarinnar og Norðlandair verði framlengdur og til þess verði séð að flugdögum á flugleiðinni Akureyri-Vopnafjörður-Þórshöfn verði ekki fækkað frá því sem nú er.

Verði talið nauðsynlegt að bjóða þjónustusamninginn út verði gert ráð fyrir því að flugdagar verði ekki færri en 5 í viku hverri.

Hér er um mjög brýnt hagsmunamál sveitarfélaganna Vopnafjarðarhrepps og Langanesbyggðar að ræða, þar sem þetta eru einu almenningssamgöngur til og frá þessum stöðum.”

 

Eftir nokkrar umræður var sveitarstjóra falið að koma ályktun þessari á framfæri við þar til gerð yfirvöld samgöngumála, innanríkisráðuneytið, Vegagerðina og samgöngunefnd Alþingis.

 

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir