Eins og greint var frá hér á síðunni hefur samningur milli Menningarráðs Austurlands og ríkisins verið endurnýjaður, í 4-ða sinn. Sá fyrirvari er á að ekki liggur fyrir hversu hár hann er. Er þetta 10unda árið í röð sem menningarfrumkvöðlum býðst að sækja styrki til Menningarráðs Austurlands. Á tímabilinu hafa samtals 350 milljónir króna komið frá ríkinu til menningar á Austurlandi. Vegna erfiðs samningaferlis MA og ríkisins hefur dregist á langinn að auglýsa umsóknir um verknefnastyrki en Vopnfirðingar hafa frá stofnun Menningarráðs sótt fé í sjóði þess vegna margvíslegra verka á vegum menningarmálanefndar sveitarfélagsins - og verður svo áfram.
Menningarmálanefnd vinnur að því að skipuleggja komandi sumar og mun leita eftir samstarfi við aðra svo sem kostur er en miklu varðar að þeir fjármunir sem til skiptanna eru nýtist vel. Hugmyndir eru um að endurvekja sjómannadag í líkingu við fyrri tíma en gerist ekki nema samstaða sé um að það verði gert – væri menningarmálanefnd reiðubúin að taka þátt í því verkefni. Hugmyndir eru uppi um skáldakvöld um miðjan júní og fyrir liggur að Björgvinshátíð verður í apríl eða maí. Skáldakvöldið gæti tekið fyrir eitt vopnfirskt skáld eða mörg en í ljósi þess skamma tíma sem framundan er, umsóknarfrestur MA er til og með 30. mars n. k., þarf að taka ákvörðun hér að lútandi sem fyrst.
Vopnaskak verður á sama tíma og í fyrra, önnur helgin í júlí, og byggist að töluverðu leyti á frumkvæði annarra en menningarmálanefndar, sem heldur alfarið utan um Einu sinni á ágústkvöldi, í fyrstu viku ágústmánaðar. Minjasafnið Bustarfelli stendur ávallt fyrir ýmsum viðburðum að sumri og er að því stefnt að samstarf aðila á milli verði aukið enda ljós að allra hagur er af slíku. Gildir þetta einnig um viðburði að vetri og má þar nefna Daga myrkurs – og verður örugglega á því tekið þegar skal bjóða til viðburðarins. Vesturfarinn stendur í stórræðum og fær stóran hóp frá Kanada sem dvelja mun á Vopnafirði um nokkurra daga skeið og vinir Vopnfirðinga sögu munu eftir sem áður vinna henni brautargengi og vonandi tekst að koma fyrstu vörðunni upp eins og að hefur verið stefnt. Varða tengd tilteknum sögustað sögunnar með stuttri lýsingu úr henni er tengist staðnum en upplýsinga verði síðan leitað í t. a. m. upplýsingamiðstöð.
Ofangreint er alls ekki tæmandi, vilji er sem dæmi að koma hér á leiklistarnámskeiði, en minnir okkur á að eitt og annað er gert til að brjóta upp hversdaginn þó ávallt sé það undir okkur sjálfum komið hversu mikið við viljum njóta þess sem í boði er. Fer saman að áhuginn er mismikill sem og þörfin en ávallt er reynt að hafa viðburðina fjölbreytta og höfða þannig til sem flestra.
Þrátt fyrir mikilvægi stuðnings ríkisins við menningarmál á Austurlandi er í öllum tilfellum sveitarfélagið sem leggur langmest til menningar auk heimaaðila. Ekkert er sjálfgefið í þeim efnum og ber að þakka þann stuðning sem menningin hefur notið á Vopnafirði í gegnum árin – og þeim fjölmörgu er hennar hafa notið með þátttöku sinni með margvíslegum hætti.
Hér fer auglýsing Menningarráðs Austurlands viðvíkjandi umsóknir um verkefnastyrki.
Auglýsing um verkefnastyrki til menningarstarfs á Austurlandi
Menningarráð Austurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Austurlandi og mennta- og menningarmálamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis um menningarmál. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Austurlandi. Smellið á lesa meira til að fá nánari upplýsingar.
Áherslur ársins 2011. Menningarráð Austurlands hefur ákveðið að árið 2011 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
• Verkefni sem hvetja til samstarfs milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Austurlandi saman.
• Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar, lista og menningartengdrar ferðaþjónustu.
• Verkefni sem hafa unnið sér sess og viðurkenningu og eru vaxandi.
• Verkefni sem fara fram á vinnustöðum á Austurlandi.
• Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
• Verkefni sem miða að því að listnemar og ungir listamenn frá Austurlandi komi í auknu mæli að listsköpun og menningarstarfi í fjórðungnum.
Umsóknarfrestur er til og með 30. mars og fer úthlutun fram í apríl. Fyrirvari er gerður um frágang og undirritun nýs menningarsamnings við ríkið fyrir þann tíma sem og innbyrðis samning milli sveitarfélaga á starfssvæði ráðsins vegna hins sama.
Öll verkefni sem fara fram á árinu 2011 geta sótt um styrki, þó svo að verkefnið sé hafið eða því lokið þegar úthlutun verkefnastyrkja fer fram.
Með umsókninni verður að fylgja greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.
Mikilvægt er að umsóknir séu rétt útfylltar og öllum skilyrðum uppfylgt að öðrum kosti verður umsókn hafnað.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Austurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðunni. http://www.menningarrad.is/ Þar er einnig að finna stefnu sveitarfélaga á Austurlandi í menningarmálum, nýjar úthlutunarreglur og aðrar upplýsingar fyrir umsækjendur.
Styrkþegar frá síðasta ári verða að hafa skilað inn greinargerð skv. samningi til þess að þeir geti sótt um fyrir 2011.
Allar nánari upplýsingar veitir Signý Ormarsdóttir, menningarfulltrúi á Austurlandi, í síma 471-3230, 860-2983 eða með tölvupósti menning@menningarrad.is
Umsóknir skal senda í tölvupósti á menning@menningarrad.is og í átta eintökum i ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Austurlands, pósthólf 123, 700 Egilsstaðir.