Vopnafjarðarskóli tekur þáttt í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli

24.03 2011 - Fimmtudagur

Á heimasíðu Vopnafjarðarskóla, www.vopnaskoli.is, gefur að lesa frétt þess efnis að skólinn er nú þátttakandi í verknefninu Heilsueflandi grunnskóli, sem Egilsstaðaskóli mun hafa verið fyrstur íslenskra skóla að taka að fullu þátt í en á þeim tíma náðu samtökin yfir 43 Evrópulönd. Líkt nú var það Lýðheilsustöð sem hélt utan um verkefnið á Íslandi og fékk Egilsstaðaskóla í samstarf við að þróa og staðfæra reglur, gátlista og inngönguskilyrði að íslenskum aðstæðum. Verkefnið hófst í Egilsstaðaskóla haustið 2008 - og nú er sum sé komið að okkur vopnfirðingum. Rétt er að halda því til haga að um árabil hefur þess verið gætt að maturinn í skólanum falli að stöðlum Lýðheilsustöðvar.

Um heilsueflinguna var skrifað:

Heilsufar og menntun er nátengd fyrirbæri.  Heilsa nemenda ræður miklu um hvort þeir komast yfirhöfuð í skólann og hvernig þeim gengur í náminu. 


Skólinn er þess vegna kjörinn vettvangur til að hvetja til heilsueflingar og heilbrigðra lifnaðarhátta meðal barna á skólaaldri.  Nær öll börn og unglingar á aldrinum 4 – 16 ára verja verulegum hluta tíma síns í skólanum.  Á þessu skeiði ævinnar læra þau um holla lífshætti, öðlast margvíslega þekkingu og temja sér hátterni sem hefur áhrif á heilsu þeirra síðar á ævinni.  Almennt má segja að sjónir manna beinist æ meira að skólunum því það eru menntastofnanir þar sem heilsuefling getur skipt verulegu máli.  Skólinn þarf að setja sér stefnu í heilsueflingarmálum þannig að kennarar, foreldrar, nemendur og aðrir sem taka þátt í skólastarfinu hafi í höndum traustar leiðbeiningar og geti gripið til aðgerða í þeim málum. 

 

Í frétt Vopnafjarðarskóla segir svo:

Vopnafjarðarskóli er nú  þátttakandi í  verkefninu Heilsueflandi grunnskóli, sem er í samstarfi við Lýðheilsustöð.

Í heilsueflandi skóla er hugað sérstaklega vel að andlegri og líkamlegri líðan nemenda og starfsfólks, sem og umhverfi skólans í góðri samvinnu við heimilin og nærsamfélagið.  Flestir geta verið sammála um  að heilbrigði sé mikilvægur þáttur í lífi og starfi hvers og eins. Mikil vakning hefur orðið í þessum málum að undanförnu og mikilvægt er að skólinn leggi sitt að mörkum til þess að hvetja nemendur og starfsfólk  að huga  að heilsusamlegu líferni. Heildstæð  heilsueflingastefna, sem er samtvinnuð skólastarfinu,  er líklegri til að stuðla að góðri heilsu og góðum námsárangri nemenda. Góð heilsa hefur jákvæð áhrif á námsárangur. Aðalmarkmið skóla er að námsárangur og líðan nemenda verði sem bestur. Heilsueflandi grunnskólar leggja mikið að mörkum til þess að skólanir nái náms- og samfélagsmarkmiðum sínum.

Með því að vera þátttakandi í þessu verkefni erum við að vinna eftir heildstæðri heilsueflingastefnu sem tekur á eftirfarandi þáttum:

 

ü  Hreyfing/ öryggi- dagleg hreyfing við öruggar aðstæður

ü  Mataræði/tannheilsa - matur og drykkir í samræmi við ráðleggingar um næringu

ü  Geðrækt – jákvæð, örugg og traust samskipti

ü  Lífsleikni- skýr  forvarnarstefna

ü  Heimili- góð tengsl og samvinna á milli skóla og heimilis

ü  Nærsamfélag –virkt samstarf við nærsamfélagið

ü  Nemendur – virkt nemendalýðræði

ü  Starfsfólk- velgengni og vellíðan starfsfólks

 

Í stýrihópnum eru aðilar úr öllu skólasamfélaginu og hann skipa:

 

Bjarney Guðrún Jónsdóttir, íþróttakennari

Debóra Dögg Jóhannsdóttir, nemandi í 9. bekk

Hrafnhildur Ævarsdóttir, foreldri

Sigríður Elva Konráðsdóttir, aðstoðarskólastjóri

Svava Birna Stefánsdóttir, kennari

 

Helstu áherslur verða eftirfarandi:

Vor 2011- Mataræði og tannheilsa

Veturinn 2011-2012- Hreyfing/öryggi og heimili





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir