Atvinnusköpun í sjávarbyggðum

25.03 2011 - Föstudagur

Iðnaðarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefnisins Atvinnusköpun í sjávarbyggðum, slíkt samfélag höfum við einmitt hér á Vopnafirði. Byggja styrkirnir á tekjum af sölu aflaheimilda fiskveiðiárin 2009/2010 og 2010/2011 til veiða á skötusel og til frístundaveiða, samanber lög um stjórn fiskveiða.

Um er að ræða tímabundinn verkefnasjóð sem hefur það að markmiði að skapa varanleg störf, efla atvinnusköpun og auka fjölbreytni atvinnulífs í sjávarbyggðum.

Öll getum við orðið sammála um að fjölbreytni atvinnulífs skortir í samfélagi sem okkar, meira og minna öll tilvistin byggir á einu fyrirtæki, HB Granda h.f. Svo sem uppsjávarfiskurinn hagar sér koma tímabil, mislöng og misáreiðanleg, þar sem er unnið útí eitt ef svo má að orði komast, síðan taka við tímabil sem nú þar sem enga vinnu er að hafa. Af eðlilegum ástæðum semur fólk sig að þessu en leita skyldi allra leiða til breytinga þannig að grundvöllur fjölbreytni, þó ekki væri nema í smárri mynd, skapaðist. Með þessum verkefnasjóði hefur glufa opnast og óskandi er að hér á Vopnafirði sjái framsýnir einstaklingar tækifæri til að hrinda í framkvæmd góðri hugmynd. Ekki má heldur útiloka samstarf við stórfyrirtækið í þessu sambandi, þvert á móti. 

Í samhengi við sjóð þennan er rétt að hafa eftirfarandi í huga:

  • Hvatt er sérstaklega til stærri samstarfsverkefna
  • Klasasamstarf ákjósanlegt þó ekki forsenda fyrir stuðningi.
  • Fyrirtæki, háskóla og rannsóknarstofnanir geta sótt um í Atvinnusköpun í sjávarbyggðum.
  • Hvatt er sérstaklega til samstarfs þessara aðila.
  • Skilyrði er að verkefnið sé til hagsbóta fyrir sjávarbyggð en aðilar utan sjávarbyggða geta tengst verkefnum eða verið í forsvari fyrir verkefni.

Styrkir geta að hámarki numið 50% að heildarkostnaði verkefnisins.

Umsóknareyðublöð eru www.nmi.is og nánari upplýsingar veitir Arna Lára Jónsdóttir, verkefnastjóri á Impru á Nýsköpunarstöð Íslands, arnalara@nmi.is og er fresturinn til og með 15. apríl 2011.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir