Hugmyndir sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps um undanþágu frá reglum um byggðakvóta voru vel kynntar hér á heimasíðu sveitarfélagsins á sínum tíma. Áður höfðu sambærilegar hugmyndir verið framsettar, m. a. á Vestfjörðum, er náðu eigi í gegn enda þarf mikið til að yfirvöld sjávarútvegsmála hreyfi við þeim lögum og reglum sem í gildi eru. Þann 26. mars sl. gerði ráðuneyti sjávarútvegs landanum það heyrinkunnugt að gengið yrði að hugmyndum vopnfirðinga, að undanþága yrði heimiluð frá reglum um byggðakvóta. Ber að fagna þessum áfanga en hann næst fyrir tilstilli sveitarstjórnar, nefndar á hennar vegum og vilja smábátasjómanna til samstarfs.
Nánar um málið. Samkvæmt reglunum um byggðakvóta þarf að veiða tvö tonn til þess að fá úthlutað tonni af byggðakvóta. Það þýðir að sjómenn á kvótalausum bátum verða að leigja kvóta til að geta landað tveimur tonnum á móti hverju tonni af byggðakvóta. Þar sem kvótaleigumarkaðurinn hefur verið svo gott sem frosinn gekk illa að veiða byggðakvóta Vopnafjarðar á síðastliðnu ári og færðist hann því yfir á þetta fiskveiðiár. Til að koma í veg fyrir að sama staða komi upp aftur ákváðu Vopnfirðingar að óska eftir því við sjávarútvegsráðherra að fá undanþágu frá reglunum. Fóru þeir fram á að fá að landa einu tonni fyrir hvert tonn af byggðakvóta. Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú samþykkt beiðni Vopnfirðinga. Auk þess hafa smábátasjómenn samþykkt að greiða sex til sjö krónur fyrir hvert kíló sem þeir veiða og mun gjaldið renna í atvinnueflingarsjóð. Er því um ávinning í báðar áttir og vonandi hefur hér komist á samvinna sem mun færa sveitarfélaginu og þegnum þess hagvöxt til framtíðar.