9.000 tonn af loðnuafurðum fryst á Vopnafirði og Akranesi

29.03 2011 - Þriðjudagur

HB Grandi h.f. hefur birt afkomutölur sínar fyrir síðasta rekstrarár og þó hagnaður sé heldur minni en árið áður gengur rekstur fyrirtækisins vel - og varðar mikils fyrir samfélagið okkar þar eð þáttur HB Granda í atvinnulífinu gríðarmikill. Helstu tölur eru en sem fyrr eru þær í evrum:

  • Rekstrartekjur samstæðunnar árið 2010 voru 144,8 m€, en voru 123,7 m€ árið áður
  • EBITDA var 41,2 m€ (28,5%), en var 32,0 m€ (25,9%) árið áður
  • Hagnaður ársins var 7,8 m€, en var 13,0 m€ árið áður

Rekstrartekjurnar eru tæpir 24 milljarðar yfirfært í íslenskar krónur og hagnaður ársins 1.3 milljarðar og eignir samtals 46,7 milljarðar króna, skuldir 25,0 milljarðar og eigið fé 21,7 milljarðar.

Á heimasíðu HB Granda, www.habgrandi.is, er frá því greint í gær að alls hafi 9.000 tonn af loðnuafurðum verið fryst á Vopnafirði og Akranesi á liðinni vertíð.

Þá er þess að geta að hjá félaginu unnu að meðaltali 670 starfsmenn á árinu samanborið við 622 árið áður.  Laun og launatengd gjöld námu samtals 48,2 m€ (7,8 milljarðar króna), en 36,7 m€ (6,3 milljarðar króna) árið 2009.

Í fréttinni segir ennfremur:

Á nýliðinni loðnuvertíð tóku fiskmjölsverksmiðjur og fiskiðjuver HB Granda á Akranesi og Vopnafirði alls á móti um 61.000 tonnum af loðnu til vinnslu. Skiptist þetta magn nokkurn veginn til helminga á milli Akraness og Vopnafjarðar. Þetta eru mikil umskipti frá vertíðinni í fyrra en þá bárust tæplega 21.600 tonn af loðnu til þessara tveggja staða.

Að sögn Ingimundar Ingimundarsonar, rekstrarstjóra uppsjávarveiðiskipa HB Granda, voru alls fryst um 9.000 tonn af loðnuafurðum á vertíðinni. Þar af voru um 2.600 tonn af loðnuhrognum en af því magni voru um 2.000 tonn fryst á Akranesi.

Ef litið er á afla einstakra skipa þá voru Faxi RE, Ingunn AK og Lundey NS öll með svipað aflamagn en heildarafli þessara skipa var 54.400 tonn á vertíðinni og aflaverðmætið 1.688 milljónir króna. Víkingur AK var gerður út í þrjár vikur á vertíðinni og var afli skipsins 6.600 tonn að verðmæti 222 milljónir króna. Heildaraflaverðmæti skipanna á loðnuvertíðinni var því um 1,9 milljarðar króna.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir