Málefni Giftar til umræðu

31.03 2011 - Fimmtudagur

Á síðastliðnum árum hefur verið öðru hverju fjallað um málefni fjárfestingarfélagsins Giftar í fjölmiðlum þjóðarinnar en málið er sveitarfélaginu Vopnafjarðarhreppi að því leyti skylt að sveitarfélagið átti nokkra fjármuni í Samvinnutryggingum, sem runnu inní félagið Gift. Þá fjármuni hefur sveitarfélagið ekki fengið til baka þó eftir því væri leitað en það tók embætti ríkislögreglustjóra heilt ár að komast að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til rannsóknar á því hvað varð um umtalsverða fjármuni eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga er runnu inn í Gift. Vopnafjarðarhreppur ásamt Djúpavogi una ekki niðurstöðunni og hafa vísað málinu til ríkissaksóknara.

 

Austurglugginn tók málið til skoðunar í síðasta tbl. sínu en þar kemur fram að nefnd sveitarfélög áttu inni fjármuni í Samvinnutryggingum, sem slitið var árið 2007 og 30 milljarðar króna sem félagið átti runnu inn í eignarhaldsfélagið Gift. Mun hafa staðið til að skipta hlutafé hins nýja félags milli eigenda en ári síðar greindi skilanefnd fyrirtækisins frá því að engar eignir væri að finna í búinu. Þvert á móti kom í ljós að í árslok það ár skuldaði Gift 45 milljarða króna.

 

Það verður að teljast eðlilegt að mörgum aðilum málsins hafi þótt undarlegt að féð hefði hreinlega gufað upp og fóru fyrrnefnd sveitarfélög fram á lögreglurannsókn. Var því vísað frá eftir árs rannsókn en sem fyrr greinir una sveitarfélögin tvö ekki þeirri niðurstöðu og hafa farið þess á leit við ríkissaksóknara að hann skeri úr um málið.

 

Mál þetta á sér langan aðdraganda en frá því er greint í fréttum RUV í ágústmánuði 2009 að grunur leiki á að lánveiting Kaupþings til fjárfestingarfélagsins Giftar í september 2008 hafi verið tilraun til að halda gengi hlutabréfa Kaupþings uppi. Mál af þessum toga eru litin mjög alvarlegum augum hjá Fjármálaeftirlitinu og eru allajafna send til sérstaks saksóknara, samkvæmt RUV. Gift er þá sagt skulda tæpa 45 milljarða króna.

 

Í lánabók Kaupþings kemur fram að fjárfestingarfélagið Gift fékk lán hjá bankanum í september 2008. Lánið var engin smáupphæð eða 166,8 milljónir evra, eða um 30 milljarðar króna á núvirði (ágúst 2009). Kaupþing ætlaði með lánveitingunni að endurfjármagna félagið. Gift átti innan við eitt prósent í Kaupþing á þessum tíma. Grunur leikur á að lánið hafi verið veitt til að aftra því að gengi bréfa í bankanum féllu.

 

Haustið 2007 voru Samvinnutryggingar lagðar niður en eignir og skuldir yfirfærðar í fjárfestingarfélagið Gift sem hélt áfram að fjárfesta á markaði með eignir Samvinnutrygginga en að mestu í fyrirtækjum sem tengdust stjórnendum Giftar. En á meðan sjóðir Giftar urðu digrari og efnahagur þess jókst fengu tryggingarhafar ekkert greitt út þrátt fyrir fögur loforð.

 

Í júní 2007 er tekin ákvörðun um að slíta Gift og skilanefnd skipuð. Uppskipting félagsins tók mun lengri tíma en áætlað var og ekkert bólaði enn á útgreiðslum til tryggingahafa eins og ætlað var og lítill þrýstingur var af hálfu viðskiptaráðherra á þessum tíma. Og þrátt fyrir félagið væri í slitameðferð héldu stjórnendur Giftar áfram að fjárfesta og keyptu meðal annars 20 milljarða hlut í Kaupþingi í árslok 2007.

 

Í mars 2008 voru ræddir tveir kostir innan stjórnar Giftar samkvæmt heimildum Fréttastofu RÚV. Annars vegar að selja eignir og greiða skuldir eða gera fjármögnunarsamning við Kaupþing en stjórnendur Kaupþings vildu ólmir gera fjármögnunarsamningana. Grunsemdir eru um að þeir hafi viljað halda uppi gengi hlutabréfa bankans. Það síðarnefnda varð raunin. Segja má að þarna sé ljóst að Gift hafi endanlega brunnið inni með allar sínar eignir og því nánast útilokað að greiða 60 þúsund tryggingarhöfum út eitthvað fé eins og lofað var.

 

Nú eru skuldir félagsins Giftar um 45 milljarðar með áföllnum vöxtum. Áætlað er að eignir félagsins dugi fyrir um 7 til 8% skuldanna. Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur heimild fyrir því að um tíu tryggingahafar séu að undirbúa málsókn á hendur félaginu.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir