Tónleikar á Vopnafirði

31.03 2011 - Fimmtudagur

Vopnfirðingum býðst að njóta tónlistar Jóns Múla Árnasonar við söngtexta Jónasar bróður hans í Kaupvangi - n. t. t. í Kaupvangskaffi - annað kvöld, þ. e. föstudagskvöldið 01. apríl og hefjast tónleikarnir kl. 20:30. Vopnfirska sveitin Batteríið heldur sína fyrstu tónleika og vill einn meðlima, Björn Hreinsson eða Bubbi, taka það sérstaklega fram að hér er alls ekki um aprílgabb að ræða heldur raunverulega tónleika sveitarinnar! Hafa meðlimir æft stíft lög meistara Jóns Múla, sem á 90 ára afmæli í dag, auk írsku laganna sem Jónas samdi texta við.

Án alls efa verður enginn svikinn af því að halda í Kaupvang og hlýða á tónlist Batterísins, fer saman hæfir flytjendur og frábær tónlist meistaranna. Batteríið skipa:

Hrafnhildur Helgadóttir, söngur; Björn Hreinsson, hljómborð; Gunnar Smári Guðmundsson, bassi, Árni Magnússon, gítar og Jóhann Már Róbertsson, trommur.

Munu þessir fyrstu tónleikar sveitarinnar verða myndaðir og valdir kaflar síðar til sýnis og áheyrnar í Múlastofu en það er algjörlega af eigin frumkvæði sem þetta góða fólk kemur saman og færir okkur íbúum sveitarfélagsins tóna og texta þeirra Árnasona - vel að verki staðið.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir