Klukkan 19:48 í gær lauk formlega mottumars Krabbameinsfélags Íslands, þá var lokað fyrir áheit en alls söfnuðust hátt í 30 milljónir króna beinlínis í þessu sambandi í liðnum mánuði - en söfnun hér að lútandi er í gangi árið um kring. Er það mikið gleðiefni hversu vel til hefur tekist en þó léttleikinn ráði för - þökk sé andliti söfnunarinnar, Þorsteini Guðmundssyni - er málefnið alvarlegt en krabbamein herjar á þúsundir Íslendinga ár hvert. Með þátttöku sinni sýndi 1/2 þjóðarinnar, þ. e. karlmenn, að þeir geta staðið saman en nú þegar mottumars er lokið hefur t. a. m. sá sem þetta ritar skellt sköfunni á mottuna og kvatt hana a. m. k. fram til 01. mars 2012.
Á heimasíðu Krabbameinsfélagsins, www.krabb.is, segir m. a. í gær:
Alls söfnuðust tæplega kr. 30.000.000 í Mottumarskeppninni 2011
- Lið Arion banka sigraði í liðakeppni en söfnun í nafni Magnúsar Guðmundssonar í einstaklingskeppni
- Fallegustu mottuna á Árni Þór Jóhannesson - valin af Meistarafélagi hárskera
Mottumars 2011 – árvekniátaki Krabbameinsfélags Íslands - lauk kl. 19:48 í kvöld og voru úrslitin kunngjörð nokkrum mínútum síðar við athöfn í Sjóminjasafni Íslands.
Söfnun í nafni Magnúsar Guðmundssonar, sem lést úr hvítblæði fyrr í mánuðinum, fékk mest af áheitum í einstaklingskeppninni. Í öðru sæti varð Bjarndís Sjöfn Blandon og Bergsveinn Alfons Rúnarsson í hinu þriðja. Í liðakeppninni náði lið Arion banki öruggu forskoti en annað sætið hreppti lið BYKO og lið Landsvirkjunar endaði í þriðja sæti.
„Við erum þakklát fyrir þann mikla stuðning sem árvekni- og fjáröflunarátakið hefur hlotið meðal almennings og það hefur verið mjög gaman að sjá allan þann fjölda karlmanna sem skartar mottum í mánuðinum! Þá viljum við einnig þakka öllum þeim ótal aðilum sem lögðu vinnu sína af mörkum í þágu Mottumars,“ segir Ragnheiður Haraldsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands.
Þetta er í fjórða sinn sem Krabbameinsfélagið stendur fyrir árvekniátaki sem beinist að karlmönnum og krabbameini og í annað sinn sem efnt er til átaksins undir merki Mottumars. Forstjóri Krabbameinsfélagsins telur víst að Mottumars sé kominn til að vera þó framkvæmd átaksins geti orðið með misjöfnum hætti. Alls skráðu um 1.800 einstaklingar sig til þátttöku í Mottumars 2011 og 400 lið.
„Þær góðu undirtektir sem Mottumars fær eru til marks um þörfina: Á hverju ári greinast rúmlega 700 karlar að meðaltali með krabbamein. Þeir greinast að jafnaði nokkru seinna en konur sem veldur því að erfiðara er að kljást við sjúkdóminn. Við viljum breyta þessu og auka aðstoð við karlmenn sem greinst hafa með krabbamein og fjölskyldur þeirra. Þá er einnig mikilvægt að leggja fé í rannsóknir á helstu krabbameinum karla,“ segir Ragnheiður.
„Tilgangur Krabbameinsfélags Íslands er að styðja og efla í hvívetna baráttuna gegn krabbameini,“ segir Sigríður Snæbjörnsdóttir, formaður stjórnar Krabbameinsfélagsins. „Það er til fyrirmyndar hvernig Íslendingar standa saman í þessari baráttu og þeir fjármunir sem svona átak skilar nýtist fjölmörgum einstaklingum og fjölskyldum þeirra. Við þekkjum öll einhvern sem greinst hefur með krabbamein,“ segir Sigríður og bendir þeim sem vilja styrkja Krabbameinsfélagið með reglulegum hætti á að hægt er að skrá sig sem Velunnara Krabbameinsfélagsins á heimasíðunni; www.krabb.is eða með því að hringja í félagið.