Þess verður minnst, að Björgvin Guðmundsson tónskáld frá Rjúpnafelli í Vopnafirði hefði orðið 120 ára á þessu ári, á Björgvinshátíð á Akureyri þann 10. apríl n. k. - og síðar í vor á Vopnafirði. Tengslin við Akureyri eru sterk en þar bjó og starfaði Björgvin um 30 ára skeið, 1931-1961 eða allt fram til dánardags.
Þykir vel við hæfi að blása til glæsilegrar hátíðar og í menningarhúsinu Hofi mun verða flutt myndarleg dagskrá með þátttöku listamanna. Af höfðingsskap sínum hafa Akureyringar ákveðið að færa Vopnfirðingum að gjöf allt það efni sem notast verður við á Björgvinshátíðinni og gefur okkur þar með tækifæri til að minnast Vopnfirðingsins Björgvins Guðmundssonar einnig - er þökkum komið á framfæri hér með. Nánar um þann viðburð síðar.
Í fréttatilkynningu viðvíkjandi Björgvinshátíð segir:
Björgvin fæddist í Vopnafirði en tvítugur að aldri fluttist hann með fjölskyldu sinni til Kanada, í og með til auðvelda Björgvini að sækja sér menntunar á sviði tónlistar. Hann hafið þá þegar sýnt ótvíræða hæfileika í þá átt og samið nokkur lög. Honum bauðst staða við Barna- og Menntaskólann á Akrueyri árið 1931 og fluttist þá heim. Þá stofnaði hann Kantötukór Akureyrar, sem var blandaður kór og hafði á stefnuskrá sinni að leggja megináherslu á flutning laga eftir íslenska höfunda og kynna almenningi íslenska tónlist. Kórinn varð að mikilvægu hljóðfæri fyrir Björgvin en hann samdi meðal annar fimm stórkórverk eða kantötur auk fjölda annarra laga. Eftir hann liggja á sjötta hundrað tónverka bæði stór og smá.
Það eru velunnarar Björgvins sem standa að hátíðinni, sem verður tveggja tíma dagskrá í Hofi.
-Flutt verður kantata eftir hann, Til komi þitt ríki, undir stjórn Roars Kvam. Þessa kantötu samdi B. árið 1924, þegar hann bjó í Kanada. Hann safnaði saman í stóran kór (allt vestur-íslendingar) og flutti kantötuna tvisvar fyrir troðfullu húsi. Þetta varð til þess að Vestur-íslendigar stofnuðu styrktarsjóð og kostuðu hann til náms í The Royal College of Music í London. En fram að því hafði hann nánast enga tónlistarmenntun hlotið, heldur var sjálfmenntaður að mestu.
-Einsöngvarar munu syngja með kórnum í þessu verki og einnig nokkur einsöngslög.
-Leikfélag Akureyrar mun flytja atriði úr söngleiknum Skrúðsbóndinn (eftir B), sem frumfluttur var árið 1942. Þetta er líklega fyrsti íslenski söngleikurinn.
-Loks verður sýnd 60 ára gömul kvikmynd, sem ekki hefur verið sýnd opinberlega áður. Hana tók Vigfús Sigurgeirsson ljósmyndari en hann söng í Kantötukór Akureyrar. Kvikmyndin er um söngför Kantötukórsins um Norðurlöndin árið 1951.
Þessi kvikmynd er í lit og munu margir Akureyringar þekkja foreldra sína eða ömmu og afa á sínum ungdómsárum. Kvikmyndin er um 15 mínútur og verður talsett í tilefni sýningarinnar.
Auk þess er að koma út ævisaga Björgvins, sem sr. Haukur Ágústsson hefur skrifað. Er hún ríkulega myndskreytt.
Loks mun verða haldin ljósmynda- og munasýning um ævi og söngstörf Björgvins, sýningin verður á Akureyri, Vopnafirði og á Egilsstöðum síðar í sumar.
Ef áhugi er fyrir að fjalla um þetta er hægt að fá fleiri upplýsingar.
Nokkrir áhugaverðir vinklar:
Þegar Björgvin var ungur átti hann vitaskuld ekkert hljóðfæri. Hann lét það þó ekki aftra sér heldur útbjó sitt eigið strengjahljóðfæri. Það gerði hann með því að binda snæri á stól sem hann strengdi á kefli og gat þannig strengt og slakað á eftir þörfum og framkallað þá tóna sem hann vildi.
Björgvin skrifaði sína fyrstu söngdrápu árið 1915-17 aðeins 24 ára gamall. Þá hafði hann nánast enga tónlistakennslu fengið, aðeins nokkra einkatíma annað var sjálfsnám. Á þessum tíma vann hann auk þess erfiðisvinnu til að hafa í sig og á.
Árið 1926 safnaði hann saman 60 manna kór og flutti kantötuna Til komi þitt ríki. Þetta varð til þess að Vestur-íslendingar studdu hann til náms við The Royal College of Music í London þaðan sem hann brautskráðist 1928. Þessa kantötu fáum við að heyra á Björgvinshátíðinni og tekur um 30 mín í flutningi.
Kantötukórinn lagði höfuð áherslu á að flytja tónlist eftir íslenska höfunda og var það reyndar alla tíð kappsmál Björgvins að fá ríkisútvarpið til að flytja meira af íslenskri tónlist.
Björgvin fæddist að Rjúpnafelli í Vopnafirði 1891. (120 ár)
Fluttist til Kanada með fjöslkyldu sinni 1911. (100 ár)
Kom aftur heim og settist að á Akureyri 1931. ( 80 ár)
Söngför Kantötukórsins til norðurlandanna árið 1951. (60 ár)
Lést á Akureyri 1961. (50 ár)
Menn sem geta sagt frá ævi og tónlistaferli BG eru
Haukur Ágústsson hag@vma.is Bjarki Sveinbjörnsson ts@tonlistarsafn.is
Þeir sem standa að Björgvinshátíðinni eru:
Ingvar Gíslason (fyrv ráðh.),
Haraldur Sigurðsson,
Sverrir Pálsson (söng í Kantötukórnum)
Þorsteinn Gunnarsson.