Léttmessa n. k. sunnudag

08.04 2011 - Föstudagur

Frá Hofsprestakalli:

Sunnudaginn 10. apríl verður guðsþjónusta í Vopnafjarðarkirkju kl. 17:00.  Áhersla á létta söngva og sálma - og eftir guðsþjónustuna bjóða fermignarbörnin öllum í messukaffi. Sunnudagaskóli er kl. 11:00. Eru allir að venju hjartanlega velkomnir.

Í kaffinu verða sýndar ljósmyndir frá barna- og unglingastarfinu í vetur, m. a. frá 10-12 ára barnamótinu á Eiðum sem haldið verður nú um helgina.

Komum og eigum góða stund í kirkjunni og þiggjum góðgjörðir hjá fermingarbörnunum.





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir