Icesave samningur felldur

11.04 2011 - Mánudagur

Sl. laugardag var kosið um Icesave samninginn, sem forseti lýðveldisins vísaði til þjóðarinnar eftir að ¾ hluti þingmanna Alþingi hafði samþykkt hann endurnýjaðan - var niðurstaðan skýr; 60% kosningabærra felldu samninginn. Er almennt litið svo á niðurstaðan hafi ekki afgerandi áhrif á stöðu þjóðmála en aðilar vinnumarkaðarins telja þó óvissuna meiri en hún var fyrir helgina – var hún ærin fyrir.

 

Íslendingur búsettur í Hollandi telur niðurstöðuna litlu breyta í afstöðu almennings til lands og þjóðar en ef fólk er spurt telur meirihlutinn eðlilegt að Ísland greiði skuld sína enda muni um minna en þá upphæð sem hér um ræðir. Að sjálfsögðu sýnist sitt hverjum en niðurstaðan er fengin og þó málið haldi áfram að veltast er óskandi að sú umræða sem gagntekið hefur þjóðmálaumræðuna verði lágstemmdari, einkum þegar fyrir liggur að þegar á þessu ári verður að farið að borga af skuldinni.

 

Heimildarmaður gerði eins og allir eiga að gera, nýtti kosningarétt sinn ásamt betri helmingnum en þegar okkur bar að garði var Sigríður Elva einmitt að leggja atkvæði sitt í kjörkassann en einn kjörstjórnarmanna hafði af því nokkrar áhyggjur að hitabylgjan hefði jafnvel lagt mann og annan … Sem betur fer fór ekki svo en víst nutum við þess að hér blésu sunnanvindar þó þeir hefðu farið full hratt yfir sums staðar á landinu.

 

Þess má geta að því fer fjarri að heimamenn allir hafandi rétt til hafi nýtt sér kosningarétt sinn því kjörsókn var á Vopnafirði 68.8% meðan hún var á landsvísu 75%. Ekki svo að skilja að það hafi breytt niðurstöðunni.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir