Kynning á framhaldsdeildinni á Þórshöfn

13.04 2011 - Miðvikudagur

Sem kunnugt er hefur Langanesbyggð, Grunnskóli Þórshafnar, átt í samstarfi við Framhaldsskólann á Laugum í Reykjadal og Þekkingarnet Þingeyinga um rekstur menntaseturs þar sem nemendum býðst aðstaða til náms í framhaldsskólum, háskólum, símenntun og námskeiðum auk þess sem setrið sinnir rannsóknarstarfi. Opnaði Menntasetrið á Þórshöfn með formlegum hætti 28. september 2009.

Á morgun, fimmtudaginn 14. apríl, mun Anna Þorsteinsdóttir, forstöðumaður Framhaldsdeildar Þórshafnar, kynna námið og starf deildarinnar í Kaupvangi milli kl. 20:00-21:30.

Um Framhaldsdeildina:

 

Þetta er annað starfsár deildarinnar þar sem nemendum gefst kostur á taka fyrstu tvö árin í framhaldsskóla í heimabyggð. Námið fer fram með þeim hætti að nemendur sinna námi sínu í Menntasetrinu á Þórshöfn gegnum netkerfið Moodle og með vikulegum fundum með hverjum faggreinakennara gegnum fjarfundabúnað. Eina skólaviku í mánuði fara nemendur síðan í námslotu í Framhaldsskólann á Laugum þar sem þeir sækja sína fagtíma og vinnustofur líkt og dagnemar og hitta faggreinakennara. Þessar lotur gefa nemendum einnig tækifæri til að taka þátt í félagsstarfi skólans og öðrum viðburðum.

 

Stjórn Foreldrafélags Vopnafjarðarskóla og Þekkingarnet Austurlands á Vopnafirði standa að kynningunni og eru allir velkomnir - og þá einkum þeir sem málið kann að varða hvattir til að mæta til kynningarinnar í Kaupvangi.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir