Samtökin Austfirskar krásir – matur úr héraði voru stofnuð þann 26. febrúar 20009, á fjölmennum stofnfundi á Egilsstöðum. Tilgangur samtakanna er að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rekstur með hráefni svæðisins. Starfssvæði samtakanna nær frá Þvottárskriðum í suðri að Sandvíkurheiði í norðri. Samtökin eru opin öllum sem stunda eða hyggjast stunda rekstur sem byggir á austfirsku hráefni, hvort sem það er við matvælaframleiðslu eða veitingarekstur.
Boðað er til aðalfundar Austfirskra krása!
Verður hann haldinn föstudaginn 15. apríl n. k. kl. 16:00 á Hótel Héraði, Egilsstöðum.
Á undan aðalfundi verður Stefán Gíslason, umhverfisverkfræðingur, gestur krásarfólks.
Flytur Stefán erindi um gæði í matvælaframleiðslu með hliðsjón af umhverfissjónarmiðum.
Kolbrún Sveinsdóttir frá Matís kemur og fræðir okkur um gæði út frá skinrænum þáttum, um neytendakannanir og fleira.
Mynd Körnu Sigurðardóttur og Virktors Sebastians, "Methods fig.1. FISH" verður sýnd, en Karna hefur mikinn áhuga á austfirskum krásum.
Almenn aðalfundarstörf og önnur mál verða á eftir erindum og umræðum um þau.
Boðið verður uppá kaffi og fundarkrásir að hætti Hótels Héraðs.
Allir eru hjartanlega velkomnir!
Frekar um krásirnar austfirsku:
“Austfirskar Krásir – Matur úr héraði” er gæðamerki á matvælum úr austfirsku hráefni, afurðir sem byggja á sérstöðu, handverki og hefðum á Austurlandi.
Austfirskar kásir matreiða og framreiða hráefni af hjartans list undir kjörorðunum: Upplifun – Vitund – Sérstaða
Samtökin Austfirskar krásir – matur úr héraði voru stofnuð þann 26. febrúar 20009, á fjölmennum stofnfundi á Egilsstöðum. Tilgangur samtakanna er að efla austfirska matarmenningu og vera samstarfsvettvangur þeirra aðila sem stunda rekstur með hráefni svæðisins. Starfssvæði samtakanna nær frá Þvottárskriðum í suðri að Sandvíkurheiði í norðri. Samtökin eru opin öllum sem stunda eða hyggjast stunda rekstur sem byggir á austfirsku hráefni, hvort sem það er við matvælaframleiðslu eða veitingarekstur.
Krásir tóku þátt í matreiðslukeppni landshlutana sem fram fór á sýningunni Ferðalög og frístundir í maí í fyrra. Þátttakandi Krása var Ólafur Ágústsson og bar hann sigur úr bítum í keppninni. Þar bar Ólafur m.a. fram bleikju, með lífrænt ræktuðu byggi frá Vallanesi, geit, lamb og heimagert skyr með birkiís. Allt hráefni og meðlæti kom af Austurlandi.