104 umsóknir um styrki til menningarverkefna

14.04 2011 - Fimmtudagur

Þann 30. mars sl. rann út frestur til að sækja um  menningar- og listastyrki til Menningarráðs Austurlands fyrir árið 2011. Alls bárust 104 umsóknir og sótt var um rúmar 60 milljónir króna. Heildarkostnaður þessara verkefna er metinn 359 milljónir króna. Að venju fóru umsóknir frá Vopnafirði til Menningarráðs Austurlands en á sl. ári var hlutur menningarmálanefndar 400 þúsund krónur en nokkru meira kom inn í sveitarfélagið í gegnum önnur verkefni. Í gildi hefur aukinheldur verið sérsamningur við Vopnafjarðarhrepp, sem byggir á fjarlægð sveitarfélagsins frá miðsvæði Austurlands.

Sótt er um til mjög fjölbreyttra verkefna á sviði menningar og lista. Athygli vekur að samstarfsvekefnum fjölgar auk þess sem greinilegt er að mörg rótgróin verkefni eru að styrkjast og stækka, s.s. margar af þekktustu hátíðum Austurlands.

Á vef Menningarráðs, www.menningarrad.is, segir ennfremur:

Mörg áhugaverð verkefni eru meðal umsókna. Má þar nefna kvikmyndaverkefni og verkefni á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu en mest aukning er á verkefnum sem tengjast hverskyns hönnun og listiðnaði. Þá berast í fyrsta skipti umsóknir frá leikskólum, grunnskólum og öðrum stofnunum sveitarfélaga sem eru að leita eftir fjármagni til vekefna þessara stofnanna sem m.a. byggja á samstarfi.

Samband sveitarfélaga á Austurlandi mun að öllum líkindum skrifa undir samning við ríkið um menningarmál 15. apríl næstkomandi og í framhaldi af því verður úthlutað fjármagni til menningarverkefna fyrir árið 2011.

 





Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit



Flýtileiðir